Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Um félagið
Stefna
Það er stefna Atvinnuþróunarfélags Suðurlands að leggja áherslu á fagleg vinnubrögð og jöfn gæði þjónustu í sérhverju verki. Viðskiptavinir Atvinnuþróunarfélagsins geta treyst því að þeir fái þá þjónustu sem samið hefur verið um.
Menntun, þekking og færni starfsmanna eru lykill að velgengni Atvinnuþróunarfélags Suðurlands. Lögð er áhersla á mikilvægi starfsmanna með því að sýna þeim traust til góðra verka. Starfsmenn sýna ábyrga afstöðu og framkomu í samskiptum við viðskipavini og vinna störf sín af öryggi og trúmennsku. Lögð er áhersla á símenntun starfsmanna og þróun þeirra í starfi.
Hlutverk
Hlutverk félagsins er að styðja við verkefni sem leiða til eflingar atvinnulífs á Suðurlandi. Til að rækta hlutverk sitt veitir félagið ráðgjöf og fjárhagslega styrki til áhugaverðra verkefna. Jafnframt hefur félagið frumkvæði að því að skilgreina og leita að nýjum atvinnutækifærum. Félagið rækir hlutverk sitt í samstarfi við einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök, önnur innlend atvinnuþróunarfélög, opinbera aðila og erlenda aðila á sviði skipulags- og atvinnumála.
Félagið leggur áherslu á vöxt og arðsaman rekstur, traust fyrirkomulag við stjórnun, úrvals starfsmenn sem hafa áhuga, frumkvæði og fá nægjanlega starfshvatningu til að veita viðskiptavinum félagsins og samfélaginu fyrirmyndar þjónustu.
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands leggur áherslu á, að í öllum samskiptum sínum við viðskiptavini verði gætt fyllsta trúnaðar.
Markmið
Höfuðmarkmið Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er að efla atvinnulíf á Suðurlandi og stuðla þannig að aukinni hagsæld á svæðinu með aðstoð við einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila í formi fjármagns og ráðgjafar.
Félagið skal jafnframt hafa frumkvæði og vera leiðandi í að upplýsa, kynna og aðstoða aðila á svæðinu við nýsköpun, nýjungar í rekstri og nýjungar í stjórnun fyrirtækja.
Undirmarkmið:
Að auka hlut Suðurlands í verkefnum á sviði hins opinbera með nánu samstarfi við aðila í stoðkerfinu.
Að taka þátt í verkefnum með Byggðastofnun og sveitarstjórnum á starfssvæðinu, sem miða að bættum búsetuskilyrðum.
Að aðstoða starfandi fyrirtæki við markaðssókn, fjármögnun, kynningu, endurskipulagningu, erlend samskipti og kynningu utan starfssvæðis jafnt innanlands sem erlendis.
Að efla samvinnu fyrirtækja á svæðinu um hugmyndir sem fýsilegt er að tengja.
Að stuðla að faglegri stjórnun fyrirtækja með innleiðingu hagnýtra stjórntækja.
Að kynna skipulega sunnlensk fyrirtæki á viðeigandi erlendum mörkuðum.
Að auka vitund innan fyrirtækja hvað varðar markaðsmál og sóknarfæri.
Að vera helsti vettvangur er stuðlar að samstarfi sunnlenskra og erlendra fyrirtækja.
Að minna stjórnvaldið stöðugt á skyldur þess við sveitastjórnir og íbúa, um að framfylgja eigin byggðastefnu.
Að taka þátt í verkefnum, með Byggðastofnun og atvinnuþróunarfélögunum, sem miða að bættum búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.
Að hafa frumkvæði að gerð tillagna til þess að ná markmiðum stjórnvalda í byggðamálum.
Að hafa frumkvæði í verkefnum sem tryggja betri búsetuskilyrði.
Að vinna að samræmdum aðgerðum sveitarstjórna og stofnanna þeirra til þess að grunnþættir
samfélagsins séu í lagi á hverjum tíma.
samfélagsins séu í lagi á hverjum tíma.
Að auka vitund almennings á mikilvægi búsetu og búsetuskilyrða.
Að auka markvissa fjölmiðlaumræðu um kosti búsetu á Suðurlandi
Gæðastefna
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands er ætlað að vera í fremstu röð sambærilegra félaga varðandi frumkvæði, þjónustugæði og þróunarstarf. Gæðastefna AÞS er því framsækin og hefur það meginmarkmið að fullnýta hæfi hennar til að inna af hendi árangursríkt þróunarstarf og skapa tækifæri til enn frekari sóknar í starfsemi á sviði atvinnu- og byggðamála.
• Byggja skal upp gæðamenningu með því að vinna stöðugt að umbótum á starfseminni til að mæta betur væntingum viðskiptavina og þörfum umhverfisins.
• Tryggja skal virka þátttöku og samstarf stjórnar, framkvæmdastjóra og annarra starfsmanna í gæðastjórnun.
• Sjá skal til þess að starfsmenn fái þjálfun við að beita aðferðum gæðastjórnunar og bæta færni sína í starfi.
Árangursmat
Með hliðsjón af mótaðri stefnu fyrir AÞS er árangur af starfi hennar kannaður með reglubundnum hætti. Þannig geta stjórn, starfsmenn og fjármögnunaraðilar lagt mat á umfang, gæði og heildarárangur starfseminnar. Niðurstöðum árangursmælinga er ætlað að skapa grunn fyrir ákvarðanatöku um úrbætur og þróun starfseminnar.
• Huglægt mat er lagt á starfsemina á grundvelli framkvæmdaáætlana, skýrslna starfsmanna, ársskýrslu og annarra tiltækra gagna um starfsemina.
• Mælanlegir þættir s.s. fjöldi og umfang verkefna, umfang samskipta, samstarf við aðrar tækni-, þjónustu- og menntastofnanir, ferðir um starfssvæðið og nýting fjármuna eru metnir út frá fyrirliggjandi upplýsingum.
• Gerðar eru viðhorfskannanir varðandi starfsemina meðal tiltekinna aðila á starfssvæðinu, þar sem m.a. verður könnuð ímynd AÞS, tengsl við umhverfið og viðhorf viðskiptavina jafnt innan starfssvæðis sem utan.
Starfsmannastefna
Starfsfólk er sú auðlind sem þróunarstarf byggist öðru fremur á. Það er stefna Atvinnuþróunarfélags Suðurlands að hafa í starfi hæfa og ánægða starfsmenn sem ná árangri í að framfylgja markmiðum hennar.
• Stjórn AÞS skal gefa skýr fyrirmæli varðandi atriði sem stjórn tekur ákvarðanir um og starfsmönnum er ætlað að framfylgja.
• Stjórnarmenn kappkosta að temja sér stjórnunarhætti sem skapa jákvætt viðhorf, vinnugleði og samstöðu meðal starfsmanna.
• Stjórn veitir starfsmönnum stuðning og leiðbeiningar þegar tilefni gefast til, veitir heilbrigt aðhald og kemur fram með uppbyggilega gagnrýni á stjórnarfundum.
• Stuðla skal að endur- og símenntun starfsmanna með hliðsjón af hagsmunum starfsmanna og AÞS.
• Tryggja skal starfsmönnum eftirsóknarvert vinnuumhverfi.
Framtíðarsýn
Það er eindreginn ásetningur stjórnenda AÞS að hleypa styrkum stoðum undir starfsemina og stuðla að markvissri uppbyggingu félagsins. Lögð er áhersla á að inna af hendi þróunarstarf og þjónustu sem stenst samanburð við það besta á Íslandi. Starfsfólk félagsins á að vera þekkt frumkvæði, baráttugleði og jákvætt viðhorf til samfélagsins.
Aukið frelsi í viðskiptum og örar breytingar á alþjóðavettvangi gera sífellt meiri kröfur til framleiðanda um lægra verð og aukin gæði. Í náinni framtíð má gera ráð fyrir, að þróun þessi leiði til þess, að ýmsar gildandi hugmyndir okkar um skipan atvinnu, atvinnugreina, staðsetningu vinnuafls og fyrirtækja taki grundvallarbreytingum. Einkum er horft til þeirrar öru þróunar sem er í fjarskiptum, mannauði, bættum samgöngum, aukinna og betri nýtinga hráefna, vannýttra auðlinda og nálægðar við markaði.
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands vill taka virkan þátt í þeim breytingum er í hönd fara og hafa áhrif á hvert stefnir. Með þátttöku sinni vill félagið sjá hag Suðurlands sem mestan þannig að lífskjör á svæðinu verði sem best.
























