Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Vinsamlegast lesið neðangreindan texta áður en haldið er áfram í umsóknarferlinu hér neðst (smellt á Halda áfram). Gott er að hafa þetta við höndina við gerð umsóknarinnar
Við mat á umsóknum er tekið mið af neðangreindum þáttum:
1. Fjöldi fyrirtækja í verkefnaumsókn
Uppfyllir umsókn kröfu um lágmarksfjölda virkra þátttökufyrirtækja?
2. Aðkoma háskóla og/eða rannsóknastofnana?
Er gert ráð fyrir þátttöku háskóla og/ eða rannsóknastofnana í rannsóknar- og þróunarstarfi?
3. Markmið og væntur árangur
Eru markmið verkefnis skýr? Er ljóst hverju verkefnið á að skila?
4. Samanburður við meginmarkmið vaxtarsamnings
Falla markmið verkefnis að markmiðum vaxtarsamnings skv. 2.gr. og svæðisbundnum áherslum?
5. Sjálfbærni samstarfs
Er um langtímasjónarmið í samstarfi að ræða? Er líklegt að samstarf haldi áfram eftir að fjármögnun vaxtarsamnings til verkefnis lýkur?
6. Vaxtarmöguleikar
Eru viðskiptalegar forsendur fyrir framhaldslífi verkefnis? Eru vaxtarmöguleikar til staðar?
7. Nýsköpunargildi
Hvert er nýnæmisgildi verkefnis fyrir fyrirtæki og/eða atvinnusvæði?
8. Fjármögnun
Hvert er hlutfall fjármögnunar vaxtarsamnings af heildarkostnaði verkefnis?
9. Framlag umsækjenda:
Hvernig skiptist mótframlag umsækjenda milli fjármagns og vinnuframlags?
10. Verk-, tíma- og kostnaðaráætlun
Er áætlun raunhæf? Er verkefnið skýrt afmarkað svo sem verkþættir og vinnuferlar?
11. Verkefnaskipulag og framlög umsækjenda
Er verkaskipting og aðkoma/framlag þátttökufyrirtækja skýr í verkefni? Er ljóst hver ber ábyrgð á framkvæmd verkefnis?
12. Mikilvægi samstarfs
Er mikilvægi samstarfs ljóst í verkefnaumsókn?
13. Þarfir fyrirtækja, sameiginleg markmið og hagsmunir
Er horft til hagsmuna og þarfa fyrirtækja í verkefnaumsókn? Hverjir eru sameiginlegir hagsmunir þátttakenda?
Styrkhæf verkefni og kostnaður
Styrkhæf verkefni eru rannsóknar- þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu, þ.m.t. ferðaþjónustu og skapandi greina. Nánar er kveðið á um styrkhæfni verkefna í 2. gr. samningsins.
Um verkefni sem kostuð eru af vaxtarsamningnum gilda eftirfarandi reglur:
Viðurkenndir kostnaðarliðir vegna styrkhæfra verkefna:
- Laun og launatengd gjöld
- Rekstrarvörur og efni o.fl.
- Aðkeypt þjónusta
- Ferðir og fundir
- Markaðsrannsókn/könnun
Nánari útlistun einstakra kostnaðarliða:
Laun og launatengd gjöld
Lagður er til grundvallar sá tími sem starfsmenn (þátttakendur) vinna í verkefninu.
- Til hliðsjónar skulu vera almennir kjarasamningar og stofnanasamningar.
- Launakostnaður miðast við útborguð laun að viðbættum launatengdum gjöldum.
- Ekki er hægt að nota útseldan taxta til viðmiðunar við útreikning launa.
Rekstrarvörur
Í umsókn skal upplýst um aðföng fyrir verkefnið. Sé um að ræða almennar rekstrarvörur tengdar rannsókna- og þróunarstarfsemi er fullnægjandi að lýsa rekstrarvörunum stuttlega og áætla samtölu kostnaðar. Sé á hinn bóginn um sérhæfðar rannsóknir að ræða þar sem þörf er á dýrum rekstrarvörum eins og oft á sér stað í tilraunaframleiðslu skal upplýsa um vöruflokka og einingarverð.
Í umsókn skal upplýst um aðföng fyrir verkefnið. Sé um að ræða almennar rekstrarvörur tengdar rannsókna- og þróunarstarfsemi er fullnægjandi að lýsa rekstrarvörunum stuttlega og áætla samtölu kostnaðar. Sé á hinn bóginn um sérhæfðar rannsóknir að ræða þar sem þörf er á dýrum rekstrarvörum eins og oft á sér stað í tilraunaframleiðslu skal upplýsa um vöruflokka og einingarverð.
Aðkeypt þjónusta
Lýst skal aðkeyptri þjónustu undir þessum lið hvort heldur sem hún er unnin af stofnun eða fyrirtæki sem jafnframt er umsækjandi eða öðrum rekstraraðilum. Gerð skal grein fyrir hvað felst í hinni aðkeyptu þjónustu eða ráðgjöf, hvers vegna hún er keypt af viðkomandi aðila, hvað þjónustan kostar, hver sé hinn skilgreindi afrakstur og hverjir eru afgreiðsluskilmálar.
Ferðir og fundir
Gerð skal grein fyrir öllum ferðum bæði utanlands og innanlands, hver er tilgangur ferðanna, hvert farið er og hvað ferðirnar kosta.
Akstur innanlands vegna lengri ferða og í stað flugs innanlands er greiddur skv. reglum fjármálaráðuneytis nr. 1/2009, á grundvelli akstursdagbókar og skv. framlögðum reikningi.
Markaðskönnun/rannsókn
Markaðskönnun til að kanna viðbrögð markaðarins við notagildi hugmyndar og hvort raunverulegur og arðsamur markaður geti verið fyrir hendi.
Hefðbundið markaðsstarf starfandi fyrirtækja sem ekki felur í sér aðgerðir tengdum nýjum vörum og þjónustu er ekki styrkhæft úr vaxtarsamningi.
Vaxtarsamningurinn fjármagnar ekki:
- Fjárfestingu í hráefnum þ.m.t. tækjum og búnaði sem eru hlutar af afurð eða þjónustu sem ætluð er til sölu.
- Fjárfestingu í sjálfu framleiðsluferlinu og umhverfi þeirra þ.m.t. húsnæði og tækjabúnaði til framleiðslu afurða og þjónustu sem ætluð er til sölu.
- Vaxtarsamningurinn styður ekki markaðsfærslu og sölustarfsemi umfram framangreint.
Vaxtarsamningurinn samþykkir ekki kostnað sem fallið hefur til vegna verkefnis áður en umsókn er lögð inn hjá umsjónaraðilum vaxtasamnings, þ.m.t. mótframlag þátttakenda.























