haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Þjónusta félagsins

Það er stefna Atvinnuþróunarfélags Suðurlands að leggja áherslu á fagleg vinnubrögð og jöfn gæði þjónustu í sérhverju verki. Viðskiptavinir Atvinnuþróunarfélagsins geta treyst því að þeir fái þá þjónustu sem samið hefur verið um.
 
Hlutverk félagsins er að styðja við verkefni sem leiða til eflingar atvinnulífs á Suðurlandi. Til að rækta hlutverk sitt veitir félagið ráðgjöf og fjárhagslega styrki til áhugaverðra verkefna. Jafnframt hefur félagið frumkvæði að því, að skilgreina og leita að nýjum atvinnutækifærum. Félagið rækir hlutverk sitt í samstarfi við einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök, önnur innlend atvinnuþróunarfélög, opinbera aðila og erlenda aðila á sviði skipulags- og atvinnumála.
 
Félagið leggur áherslu á vöxt og arðsaman rekstur, traust fyrirkomulag við stjórnun, úrvals starfsmenn sem hafa áhuga, frumkvæði og fá nægjanlega starfshvatningu til að veita viðskiptavinum félagsins og samfélaginu fyrirmyndar þjónustu.
 
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands leggur áherslu á, að í öllum samskiptum sínum við viðskiptavini verði gætt fyllsta trúnaðar.
 
Höfuðmarkmið Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er að efla atvinnulíf á Suðurlandi og stuðla þannig að aukinni hagsæld á svæðinu með aðstoð við einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila í formi fjármagns og ráðgjafar.
 
Félagið skal jafnframt hafa frumkvæði og vera leiðandi í að upplýsa, kynna og aðstoða aðila á svæðinu við nýsköpun, nýjungar í rekstri og nýjungar í stjórnun fyrirtækja.
 
AÞS aðstoðar fyrirtæki og einstaklinga í atvinnuskapandi verkefnum á svæðinu. Hvort sem um er að ræða viðbót við núverandi rekstur, stofnun fyrirtækis eða nýsköpunarverkefni. Starfsmenn félagsins geta veitt aðstoð við:
 
• Alþjóðlegt samstarf
• Faglegan samanburð
• Fjárhagslega endurskiplagningu
• Fjármögnun
• Greiningarvinnu ýmiskonar
• Gæðamál
• Hagkvæmniathuganir
• Kynningar
• Markaðsvinnu
• Nýsköpun
• Rannsóknir
• Rekstaráætlanir
• Sjóðaumsóknir
• Skipulagning ráðstefna
• Stefnumótun
• Styrksumsóknir
• Upplýsingaöflun
• Verkefnisstjórnun
• Véla-og tækjakaup
• Viðskiptaáætlanir
• Vöruþróun
• Þróun hugmynda
 
..........................Svo fátt eitt sé talið
 
AÞS er framkvæmdaaðili Vaxtarsamnings Suðurlands og Vestmannaeyja auk þess sem það veitir Eignarhaldsfélagi Suðurlands forstöðu.
 
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands...
• Tekur þátt í og er leiðandi við mótun atvinnustefnu á Suðurlandi.
• Hefur frumkvæði í leit að sóknarfærum í atvinnulífinu.
• Stendur fyrir sérstökum rannsóknar- og þróunarverkefnum, sem stuðla að þróun atvinnutækifæra.
• Aðstoðar fyrirtæki, einstaklinga, sveitarfélög, félagasamtök og stofnanir við að kanna nýjungar í atvinnurekstri.
• Veitir fyrirtækjum og einstaklingum almenna viðskiptaráðgjöf svo sem ráðgjöf varðandi vöruþróun, fjármögnun, markaðssetningu og rekstur.
• Hefur frumkvæði að samvinnu við aðila í atvinnulífinu og eflir samstarf milli þeirra.
• Er tengiliður milli tækni- og þjónustustofnana atvinnulífsins og þeirra sem eru í atvinnurekstri eða starfa að atvinnumálum.
• Miðlar upplýsingum um tækni, rekstur og fjármögnunarmöguleika og aðstoðar við gerð umsókna og lána.
• Stendur fyrir uppbyggingu fagþekkingar og stjórnunarkunnáttu með námskeiðahaldi og annarri fræðslustarfsemi.
• Kyndir undir samvinnu milli fyrirtækja á Suðurlandi
• Veitir upplýsingar til fyrirtækja varðandi markaði og möguleg sóknarfæri
• Er hlekkur í samskiptakeðju milli fyrirtækja á svæðinu og stofnana í stoðkerfi atvinnulífsins.
 
AÞS veitir víðtæka þjónustu til fyrirtækja, einstaklinga og sveitarfélaga á starfsvæðinu og er milliliður atvinnulífsins og stofnana í stoðkerfi atvinnulífsins. AÞS tekur þátt í og stendur fyrir verkefnum með það að markmiði að bæta búsetuskilyrði og samkeppnishæfni og auka aðdráttarafl Suðurlands fyrir núverandi og tilvonandi íbúa, ferðamenn og atvinnulíf.
 
 

Innskráning á styrkumsóknir

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.