Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Styrkir til atvinnuþróunar
Umsóknarfrestur er útrunninn fyrir árið 2009
Ekki verða veittir styrkir á árinu 2010
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til atvinnuþróunar á starfssvæði sínu.
Umsækjendur geta verið fyrirtæki, félög, stofnanir og einstaklingar með rekstur á Suðurlandi. Til ráðstöfunar, að þessu sinni, eru 5,0 mkr.
Í umsókninni þarf m.a. að koma fram stutt lýsing á verkefninu, ætluðum ávinningi þess ásamt kostnaðar-, fjármögnunar- og tímaáætlun.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi fyrir x.
Hlutverk Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er m.a. að styðja við verkefni sem leiða til eflingar atvinnulífs á Suðurlandi. Til að rækta hlutverk sitt veitir félagið ráðgjöf og styrki til áhugaverðra verkefna.
Umsóknir
Umsækjendur geta verið fyrirtæki, félög, stofnanir og einstaklingar með rekstur á Suðurlandi.
Allar umsóknir skulu færðar á rafrænt umsóknareyðublað félagsins. Í umsókninni þarf m.a. að koma fram stutt lýsing á verkefninu, ætluðum ávinningi þess ásamt kostnaðar-, fjármögnunar- og tímaáætlun.
Umsóknareyðublað er að finna hér að neðanverðu.
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins.
Mikilvægt er að umsóknir séu vel gerðar og að öll gögn fylgi með þeim.
Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
Skilyrði að verkefnið styrki atvinnulíf á Suðurlandi.
Mat á umsóknum
Mat á umsóknum byggist eingöngu á þeim gögnum sem umsækjandi leggur fram og er þá miðað við eftirfarandi þætti:
- Er líklegt að verkefnið skapi atvinnu á Suðurlandi?
- Er verkefnið nýnæmi fyrir atvinnulíf á Suðurlandi?
- Er verkefnið skýrt á fullnægjandi hátt – markmið og vinnuferlar skýrir?
- Bendir umsókn til þess að verkefnið verði framkvæmt með fullnægjandi hætti?
- Er kostnaðaráætlun trúverðug?
- Er verkefnið í samkeppni við aðra á svæðinu?
- Er fjármögnun verkefnisins tryggð?
Eftirfylgni
Styrkurinn er greiddur út eftir framvindu verkefnisins. Senda skal stutta skýrslu með upplýsingum um framvindu verkefnisins og árangur borinn saman við þær áætlanir sem fylgdu umsókninni.
Ef skýrslu hefur ekki verið skilað innan sex mánaða eftir að styrkveiting liggur fyrir, þá fellur styrkur sjálfkrafa niður.
Móttaka umsókna
Einungis er tekið við umsóknum sem sendar eru í gegnum heimasíðu félagsins hér að neðan.
Ef væntanlegir umsækjendur lenda í vandræðum með að fylla inn í umsóknarformið er hægt að hafa samband við starfsfólk félagsins í síma 4808210 og mun starfsfólkið þá veita alla mögulega aðstoð.
Smelltu hér til að fylla inn í rafræna umsókn






















