Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Styrkir
Styrkir utan félagsins:
Atvinnuþróunarfélag fylgist vökulum augum með auglýsingum í fjölmiðlum og víðar um styrki sem nýst geta á starfsvæði félagsins.
Auglýsingarnar eru birtar á forsíðu heimasíðu félagsins. Starfsmenn félagsins senda jafnan tilkynningar til aðila sem þeir telja að geti sótt um styrkina.
Áhugasamir aðilar um styrki geta skráð sig á póstlista og fengið sendar auglýsingar í tölvupósti. Hægt er að skrá sig með að smella hérna.
Ráðgjafar AÞS aðstoða áhugasama aðila við gerð umsókna og mögulega eftirfylgni með þeim.
Styrkir Atvinnuþróunarfélags Suðurlands
Ekki er tekið við umsóknum vegna styrkja AÞS sem stendur. Tekin hefur verið ákvörðun af stjórn félagsins að veita ekki styrki til atvinnuþróunar á árinu 2010
Ár hvert hefur Atvinnuþróunarfélag Suðurlands auglýst eftir umsóknum vegna styrkja félagsins sem ætlaðir eru til atvinnuþróunar á Suðurlandi.
Umsækjendur geta verið fyrirtæki, félög, stofnanir og einstaklingar með rekstur á Suðurlandi. Til ráðstöfunar árið 2009 voru 5,0 mkr.
Í umsókninni þarf m.a. að koma fram stutt lýsing á verkefninu, ætluðum ávinningi þess ásamt kostnaðar-, fjármögnunar- og tímaáætlun.
Umsóknum þurfti að skila á rafrænu formi fyrir 17. apríl 2009.
Hlutverk Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er m.a. að styðja við verkefni sem leiða til eflingar atvinnulífs á Suðurlandi. Til að rækta hlutverk sitt veitir félagið ráðgjöf og styrki til áhugaverðra verkefna.
Umsóknir:
Umsækjendur geta verið fyrirtæki, félög, stofnanir og einstaklingar með rekstur á Suðurlandi.
Allar umsóknir skulu færðar á rafrænt umsóknareyðublað félagsins. Í umsókninni þarf m.a. að koma fram stutt lýsing á verkefninu, ætluðum ávinningi þess ásamt kostnaðar-, fjármögnunar- og tímaáætlun.
Umsóknareyðublað er að finna hér að neðanverðu.
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins.
Mikilvægt er að umsóknir séu vel gerðar og að öll gögn fylgi með þeim.
Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
Skilyrði að verkefnið styrki atvinnulíf á Suðurlandi.
Mat á umsóknum:
Mat á umsóknum byggist eingöngu á þeim gögnum sem umsækjandi leggur fram og er þá miðað við eftirfarandi þætti:
· Er líklegt að verkefnið skapi atvinnu á Suðurlandi?
· Er verkefnið nýnæmi fyrir atvinnulíf á Suðurlandi?
· Er verkefnið skýrt á fullnægjandi hátt – markmið og vinnuferlar skýrir?
· Bendir umsókn til þess að verkefnið verði framkvæmt með fullnægjandi hætti?
· Er kostnaðaráætlun trúverðug?
· Er verkefnið í samkeppni við aðra á svæðinu?
· Er fjármögnun verkefnisins tryggð?
Eftirfylgni
Styrkurinn er greiddur út eftir framvindu verkefnisins. Senda skal stutta skýrslu með upplýsingum um framvindu verkefnisins og árangur borinn saman við þær áætlanir sem fylgdu umsókninni.
Ef skýrslu hefur ekki verið skilað innan sex mánaða eftir að styrkveiting liggur fyrir, þá fellur styrkur sjálfkrafa niður.
Móttaka umsókna
Einungis er tekið við umsóknum sem sendar eru í gegnum heimasíðu félagsins hér að neðan.
Ef væntanlegir umsækjendur lenda í vandræðum með að fylla inn í umsóknarformið er hægt að hafa samband við starfsfólk félagsins í síma 4808210 og mun starfsfólkið þá veita alla mögulega aðstoð.
Haustið 2009 var ráðstafað 5 mkr. Alls bárust 33 umsóknir og af þeim uppfylltu 26 skilyrði fyrir styrk. Alls var sótt um rúmar 20 mkr. Eftirtalin 26 verkefni hlutu styrk
- 300.000 kr. Sesseljuhús, Orkugarður Sólheima, fræðslu og skemmtigarður
- 300.000 kr. Mýrdalssandur ehf., Þróun vinnslulínu og markaðssetning
- 300.000 kr. Jón Tryggvi Guðmundsson, Framleiðsla á Bíógasi - hönnun og teikningar á vélbúnaði
- 300.000 kr. Glófi ehf. Markaðsmál fyrir verslun með ullarvöru og minjagripi á Hvolsvelli
- 300.000 kr. Einar Matthías Þórarinsson, Framleiðsla á spæni - hönnun og smíði vélar
- 300.000 kr. Anna Árnadóttir, Dansk-Íslenska sögusetrið á Eyrarbakka
- 200.000 kr. Steinunn Bjarnadóttir, Efling ferðaþjónustu í Reykholti - skipulag og hönnun
- 200.000 kr. Sólstaðir ehf., Markaðssetning, Laugavatn Adventure
- 200.000 kr. Sigva Margmiðlun, Margmiðlunarfrásagnir vöruþróun
- 200.000 kr. Ragnheiður Jónasdóttir, Heklusýning, hönnun og uppbygging
- 200.000 kr. Kjartan Ágústsson, Rabarbía- vöruþróun, markaðssetning og kynningarefni
- 200.000 kr. Kirkjubæjarstofa, Jarðeldasýnin á Kirkjubæjarklaustri - undirbúningur og hönnun
- 200.000 kr. Húfa ehf., Hönnun húsnæðis, vöruþróun markaðs og kynningarmál
- 200.000 kr. Hekla Hermundsdóttir, Framleiðsla á kaplamjólk - vöruþróun og markaðsathugun
- 200.000 kr. Gaulverjar ehf., Gistihús/svefnpokagisting, markaðssetning á nýju gistiheimili
- 200.000 kr. Ferðamálafélag Skaftárhrepps, Friðsæld og frumkraftar, markaðs og vöruþróun í ferðaþjónustu Skaftárhreppi
- 200.000 kr. Eld-Járn ehf., Járningaskólinn á Stokkseyrarseli, vöruþróun og markaðssetning
- 200.000 kr. Dagrún Jónsdóttir, Vélhjólapartur, hönnun mótorhjólasafns og samkomustaðar
- 100.000 kr. Vélsmiðja Ingvars Guðna, Kynning á nýjum íslenskum áherslum í kreppu
- 100.000 kr. Steinunn Hrafnkelsdóttir, Náttúruval-Sápugerð, - vöruþróun og markaðssetning
- 100.000 kr. Snyrtistofan Ylur ehf., Heimasíðugerð og markaðssetning
- 100.000 kr. Páll Reynisson, Veiðisafnið, markaðssetning
- 100.000 kr. Menningarmiðlun ehf., Uppbygging vefsvæða og tengslaneta
- 100.000 kr. Halldór Jónsson, Bátaferðaþjónustan við Suðurströndina - auglýsingar og heimasíða fyrir bátahöfn
- 100.000 kr. Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, Meðgöngunudd - markaðssetning og kynningarefni
- 100.000 kr. 24seven ehf., Visit WestmannIsland.com - markaðssetning og kynning






















