haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
 
 Mynd: Skaftárhreppur - Kirkjubæjarklaustur
 
Skaftárhreppur
Póstfang: Klausturvegi 15
880 Kirkjubæjarklaustri
Sveitafélagsnúmer: 8509
Kennitala: 480690-2069
Símanúmer: 487 4840
Fax: 487 4842
Heimasíða: www.klaustur.is
 
 
Íbúafjöldi
1. des. 2010: 447
1. des. 2009: 450
1. des. 2008: 467
1. des. 2007: 466
1. des. 2006: 485
1. des. 2005: 490
1. des. 2004: 506
 
Heildar flatarmál sveitarfélagsins 6.946 km². Sveitarfélagið er annað stærsta sveitarfélag landsins í fermetrum talið.
 
Skaftárhreppur er sveitarfélag sem nær yfir alla Vestur-Skaftafellssýslu að Mýrdalshreppi undanskildum. Hreppurinn varð til 10. júní 1990 við sameiningu 5 hreppa: Álftavershrepps, Leiðvallarhrepps, Skaftártunguhrepps, Kirkjubæjarhrepps og Hörgslandshrepps.
Þéttbýlið Kirkjubæjarklaustur stendur við Skaftá og þar er hægt að finna markverða staði eins og Systrafoss, Systrastapa og Stjórnarfoss. Hreppurinn einkennist af landbúnaði og að þar rann eitt víðfeðmasta hraun landsins úr Lakagígum á 18. öld. Skaftárhreppur er 51. fjölmennasta sveitarfélag Íslands
 
Atvinnuhættir: Landbúnaður
Meðal fyrirtækja í sveitarfélaginu eru: Glæðir ehf.
 
Sveitarstjórnarkosningar 2010. Á kjörskrá voru 364, atkvæði greiddu 304, auðir seðlar voru 14, ógildir seðlar voru 2, kjörsókn var 83,5%.
 
Listar við kosninguna:
Framsýn - listi framsýnna íbúa (L) 119 atkv., 2 fulltr.
Skaftárhrepp á kortið (Ó) 169 atkv., 3 fulltr.
 
Hreppsnefnd:
L Þorsteinn M. Kristinsson lögreglumaður, Efri-Vík
L Jóna S. Sigurbjartsdóttir hársnyrtimeistari, Skriðuvöllum 11
Ó Guðmundur Ingi Ingason lögregluvarðstjóri, Skaftárvöllum 2
Ó Jóhanna Jónsdóttir, bóndi/ferðaþjónusta, Hunkubökkum
Ó Jóhannes Gissurarson bóndi, Herjólfsstöðum
 
Varamenn í hreppsnefnd:
L Þórunn Júlíusdóttir leikskólastjóri, Seglbúðum
L Rannveig E. Bjarnadóttir matráður, Skaftárvöllum 8
Ó Sverrir Gíslason bóndi, Kirkjubæjarklaustri II
Ó Guðmundur Vignir Steinsson, slökkviliðsstjóri, Nýjabæ
Ó Ragnheiður Hlín Símonardóttir bóndi/sjúkraliði, Kálfafelli 1b
 
Oddviti:
Guðmundur Ingi Ingason, Skaftárvöllum 2
 
Varaoddviti:
Jóna S. Sigurbjartsdóttir, Skriðuvöllum 11
 
Sveitarstjóri:
Eygló Kristjánsdóttir
 
 
 
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.