haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Handleiðsla / fræðsla

 
Starfsmenn AÞS sinna handleiðslu og verkefnastjórnun fyrir viðskiptavini félagsins. Handleiðslan er fyrst og fremst á sviði nýsköpunar, stefnumótunar, rekstrarráðgjafar og vöruþróunar. Þá hefur félagið sinnt handleiðslu fyrir þátttakendur á Brautargengisnámskeiðum og Vaxtasprotanámskeiðum, svo dæmi sé tekið.
 
Starfsmenn AÞS taka þátt í ýmsum námskeiðum sem eiga að gagnast atvinnulífi á Suðurlandi. Má þar á meðal nefna námskeið á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Útflutningsráðs og Fræðslunets Suðurlands, o.fl.
 
Eitt af hlutverkum AÞS er að taka þátt í að miðla fræðslu um starfssvæði sitt. Starfsfólk félagsins hefur tekið þátt bæði í kennslu og handleiðslu m.a í verkefnunum Brautargengi og Vaxtarsprotar.

Einnig hefur verið leitað til starfsfólks til að kenna námskeið á sviði stjórnunar og stofnunar fyrirtækja m.a fyrir símenntunarmiðstöðvarnar á starfsvæðinu.
 
Þar fyrir utan gerir starfsfólk Atvinnuþróunarfélagsins sér far um að miðla upplýsingum um námskeið og fræðsluverkefni sem í boði eru á vegum ýmissa aðila og gætu átt erindi til viðskiptavina félagsins.
 
 

Innskráning á styrkumsóknir

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.