Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Byggðaþróun
Eitt af hlutverkum Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er að stuðla að jákvæðri byggðaþróun á starfssvæði sínu. Félagið vinnur að fjölmörgum verkefnum tengt Byggðastofnun. Verkefnin eru fjölmörg: úttektir, gagnaöflun, skýrslugerð og svör við fyrirspurnum frá ráðuneytum og alþingismönnum, svo fátt eitt sé nefnt.
AÞS hefur frumkvæði stefnir ávalt að úrbótum í byggðamálum, það er gert með að efla samstöðu, efla samstarf og vinna aðsamþættingu verkefna.
Byggðastofnun útdeilir m.a. styrkjum (samkeppnissjóður) til Atvinnuþróunarfélaganna á Íslandi, í gegnum verkefnissjóð atvinnuþróunarfélaganna. Auk þess greiðir Byggðarstofnun fyrir þá vinnu sem atvinnuþróunarfélögin inna af hendi fyrir stofnunina. Byggðastofnunar á áheyrnarfulltrúa í stjórn AÞS.
Aðilar á landsbyggðinni geta leitað til Byggðastofnunar um lán. Starfsfólk AÞS hefur haft milligöngu um slíkt og aðstoðað viðskiptavini sína í því ferli.






















