haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Lokað er fyrir umsóknir að svo stöddu.  Næsta úthlutun verður auglýst vorið 2012

 

Vaxtarsamningur Suðurlands (VSS) 2010 - 2013

 
Úthlutun 4
 
Vaxtarsamningur Suðurlands. Styrkir til eflingar nýsköpunar og samkeppnishæfni atvinnulífsins á Suðurlandi. Umsóknafrestur var til og með 4. október
 
Vaxtarsamningur Suðurlands auglýsti eftir umsóknum um styrk til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurlandi. Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.
 
Óskað var eftir umsóknum frá klösum (í það minnsta þrjú fyrirtæki) sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Í þessari úthlutun var sérstök áhersla lögð á sunnlenska smáframleiðslu og hönnun. Gerð er krafa til þess að verkefnin styðji atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
 
Í boði voru 15 milljónir. Mótframlag verkefnisins þurfti að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtækin, rannsóknar – þróunar og háskólastofnanir vinna saman nutu alla jafna forgangs. Að auki var horft til þess að verkefnin skili ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
 
Í umsókninni þurfti að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki var veittur styrkur til fjárfestinga.
 
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands www.sudur.is.
 
Umsóknafrestur er til og með 4. október 2011
 
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands www.sudur.is í síma 4808210 og 4812961
 
Alls bárust 12 umsóknir og var heildarupphæð styrkbeiðna tæplega 30,9 mkr.
 
Á fundum verkefnisstjórnar samningsins þann 18. október 2011 og 24. október, voru teknar ákvarðanir um að styrkja 7 verkefni af þeim 12 sem sent höfðu inn umsókn.  Afgreiðsla á einu verkefni var frestað til næsta fundar.  Heildarupphæð úthlutaðra styrkja var 13.650.000 kr.
 
 
Eftirtalin verkefni hlutu styrk:
 
1) Nýting affallsvatns frá fiskeldi: 1.500.000 kr.
2) Framleiðsla á Birkisalti: 400.000 kr.
3) Kötluafurðir: 4.000.000 kr.
4) Smáframleisla á hrápylsum og vöðvum: 3.000.000 kr.
5) Handverk, hönnun og list til atvinnueflingar: 650.000 kr.
6) Markaðssókn á netinu: 1.600.000 kr.
7) Markaðssetning lúpínuseyðis: 2.500.000 kr.
 
Úthlutun 3
 
Í mars 2011 auglýsti Vaxtarsamningur Suðurlands eftir umsóknum vegna styrkja til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurland.
 
Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.
 
Óskað var eftir umsóknum frá klösum og/eða samstarfsverkefnum sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Gerð var krafa til þess að verkefnin myndu styðja atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
 
Í boði voru 20 milljónir. Mótframlag verkefnisins þurfti að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtæki, rannsóknar – þróunar og háskólastofnanir vinna saman nutu alla jafna forgangs. Að auki var horft til þess að verkefnin myndu skila ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
 
Í umsókn þurfti að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
 
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands www.sudur.is
 
Umsóknafrestur var til og með 4. apríl 2011
 
Alls bárust 10 umsóknir og var heildarupphæð styrkbeiðna tæplega 40 mkr.
 
Á fundi verkefnisstjórnar samningsins þann 18. apríl 2011, var tekin ákvörðun um að styrkja 6 verkefni af þeim 17 sem sent höfðu inn umsókn. Heildarupphæð úthlutaðra styrkja var 14.300.000 kr.
 
Eftirtalin verkefni hlutu styrk:
 
1) Þróun á þurrfóðri og fóðrurum fyrir japönsk sæbjúgu: 5.000.000 kr.
2) Uppbygging ferðaþjónustu í Þorlákshöfn: 800.000 kr.
3) Mýrdalurinn í sókn: 2.000.000 kr.
4) Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri: 1.500.000 kr.
5) Áfangastaðurinn Vestmannaeyjar: 4.000.000 kr.
6) Menningarleg fjársjóðsleit: 1.000.000 kr.
 
 
Úthlutun 2
 
Í september 2010 auglýsti Vaxtarsamningur Suðurlands eftir umsóknum vegna styrkja til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurland á sviði útflutnings og gjaldeyrisskapandi viðskipta.
 
Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.
 
Óskað var eftir umsóknum frá klösum og/eða samstarfsverkefnum sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Gerð var krafa til þess að verkefnin myndu styðja atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
 
Í boði voru 15 milljónir. Mótframlag verkefnisins þurfti að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtæki, rannsóknar – þróunar og háskólastofnanir vinna saman nutu alla jafna forgangs. Að auki var horft til þess að verkefnin myndu skila ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
 
Í umsókn þurfti að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
 
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands www.sudur.is 
 
Umsóknafrestur var til og með 11. október 2010
 
Alls bárust 10 umsóknir og var heildarupphæð styrkbeiðna rúmlega 34 mkr.
 
Á þriðja fundi verkefnisstjórnar samningsins þann 26. október 2010, var tekin ákvörðun um að styrkja 5 verkefni af þeim 10 sem sent höfðu inn umsókn. Heildarupphæð úthlutaðra styrkja var 12.080.000 kr.
 
Eftirtalin verkefni hlutu styrk:
 
1.  Reyking á fiski til útflutnings. 1,75 mkr.
2.  Atlantberry – berjaræktun 1,5 mkr.
3.  Fræðandi ferðaþjónusta á Suðurlandi. 5,0 mkr.
4.  Markaðssetning vellíðunarferðaþjónustu. 1,6 mkr.
5.  Samstarf um nýtingu á skötuselslifur. 2,23 mkr.
 
 
Úthlutun 1
 
Í apríl 2010 auglýsti Vaxtarsamningur Suðurlands eftir umsóknum vegna styrkja til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurlandi. Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.
 
Óskað var eftir umsóknum frá klösum og/eða samstarfsverkefnum sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Gerð var krafa til þess að verkefnin myndu styðja atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
 
Í boði voru 20 milljónir. Mótframlag verkefnisins þurfti að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtæki, rannsóknar – þróunar og háskólastofnanir vinna saman nutu alla jafna forgangs. Að auki var horft til þess að verkefnin myndu skila ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
 
Í umsókn þurfti að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
 
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands www.sudur.is
 
Umsóknafrestur var til og með 10. maí 2010
 
Alls bárust 22 umsóknir og var heildarupphæð styrkbeiðna rúmlega 66 mkr.
 
Á öðrum fundi verkefnisstjórnar samningsins þann 1. júní 2010, var tekin ákvörðun um að styrkja 11 verkefni af þeim 22 sem sent höfðu inn umsókn. Heildarupphæð úthlutaðra styrkja var 19,1 mkr.
 
Eftirtalin verkefni hlutu styrk:
 
1. Aukin arðsemi hrognavinnslu með aukinni skynjara- og upplýsingatækni, 3,0 mkr.
2. Margmiðlunartorg, 2,5 mkr.
3. Hlývatnseldi á hvítfiski, 1,1 mkr.
4. Vetrarferðir í Skaftárhrepp, 2,5 mkr.
5. Ríki Vatnajökuls, 3,0 mkr.
6. Smáframleiðsla matvæla í Ríki Vatnajökuls, 1,5 mkr.
7. Átaksverkefni HfSu í Uppsveitum Árnessýslu – Matvælasmiðja, 2,0 mkr.
8. Fuglar á Suðurlandi, 2,0 mkr.
9. Nýting jarðgufu við framleiðslu á soðum og bragðkjörnum, 500 þús.kr.
10. Framleiðsla á lúpínuseyði, 500 þús. kr.
11. Þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu í grannbyggðum Vatnajökulsþjóðgarðs á Suðurlandi, 500 þús. kr.
 
 
 
Fundargerðir verkenisstjórnar VSS
1. Sandra D. Gunnarsdóttir, formaður,
2. Berglind Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
3. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjörður
4. Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar
5. Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands
 
 
Samningar:
 
 
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.