Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Nýsköpun og rekstur
Eitt af megin markmiðum AÞS er að efla og auka fjölbreytni í atvinnulífi á Suðurlandi. Til að ná fram þessu markmiði vinnur félagið náið með sveitarfélögum, fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum á svæðinu við margvísleg verkefni tengd atvinnusköpun og uppbyggingu. Upplýsingaöflun og greining á atvinnu- og byggðamálum er stór þáttur í starfi félagsins og styður það við þá uppbyggingu sem á sér stað í atvinnumálum á svæðinu.
Félagið hvetur einstaklinga og fyrirtæki á starfssvæðinu til að hafa samband við starfsfólk félagsins telja að það geti orðið að liði. Viðskiptavinir geta verið vissir um að fyllsta trúnaðar er gætt. Þjónusta félagsins er notendum að kostnaðarlausu að vissu marki, sjá nánar hér.
Rekstur
Fyrirtæki og einstaklingar á Suðurlandi sem reka eða ætla að hefja rekstur fyrirtækis geta óskað eftir ráðgjöf eða aðstoð AÞS. Aðstoð þessi felst aðallega í rekstrarúttektum og gerð rekstrar- og viðskiptaáætlana á núverandi eða fyrirhuguðum rekstri fyrirtækis. Rekstraráætlun er nauðsynleg forsenda fyrir öllum fyrirtækjarekstri og verður í raun aldrei hægt að segja of mörg orð um ágæti slíkra áætlana. Þá eru slíkar áætlanir forsenda fyrir lánafyrirgreiðslum og styrkjum frá ýmsum aðilum. Viðskiptaáætlun er nauðsynlegt tæki til að meta hagkvæmni fyrirhugaðs rekstrar.
Rekstrarúttekt
Rekstrarúttekt er greining sem gerð er til að meta stöðu fyrirtækisins út frá ýmsum upplýsingum um fyrirtækið þ.á.m.:
• Vöru/þjónustu
• Markaðssvæði
• Staðsetningu
• Fjárhagslegri stöðu
• Rekstrarlegri stöðu
Rekstraráætlun
Rekstraráætlun er unnin út frá rekstrarúttekt. Í áætlun koma fram tillögur að úrbótum og rekstraráætlun varðandi núverandi rekstur.
Helstu þættir í áætluninni eru:
• Varan/þjónustan
• Markaðurinn
• Staðsetning
• Framkvæmdaráætlun
• Rekstraráætlun
• Starfsmenn
• Fjármögnun
• Niðurstaða (úrbætur)
Viðskiptaáætlun
Viðskiptaáætlun er í raun sama og rekstraráætlun nema að rekstur er ekki hafinn á þessu stigi. Hlutverk viðskiptaáætlunar er að meta hagkvæmni viðskiptahugmyndar.
Helstu þættir í áætlun eru:
• Viðskiptahugmyndin
• Stofnaðilar
• Varan/þjónustan
• Markaðurinn
• Staðarval fyrirtækisins
• Framkvæmdaráætlun viðskiptahugmyndar
• Rekstraráætlun
• Starfsmenn
• Fjármögnun
• Niðurstöður (hagkvæmismat)
























