Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
11. maí. 2001 kl.16:00
203. fundur Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands haldinn föstudaginn 11. maí 2001, kl. 16:00, á Höfðabrekku í Mýrdal.
Á fundinn voru mættir: Gísli Páll Pálsson, formaður, Loftur Þorsteinsson, Guðmundur Svavarsson, Árni Jón Elíasson og Ingunn Guðmundsdóttir varamaður. Á fundinn mættu einnig starfsmenn sjóðsins þeir Róbert Jónsson framkvæmdastjóri sjóðsins og Sædís Íva Elíasdóttir sem ritaði fundargerð.
1. Fjárhagsstaða.
Banki 45,5 milljónir
Sjóðstr. 90 daga 7,1 milljónir
Inneign hjá Atgeir 8,6 milljónir
61,2 milljónir
Óafgreitt < 6,7 milljónir>
Samt.: 54,5 milljónir
2. Verkefnayfirlit.
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að.
3. Byggðaþróunarverkefni í V-Skaftafellssýslu
Sædís Íva gerði grein fyrir starfinu og stöðu atvinnumála á svæðinu.
4. Mýrdælingur
Erindi frá Reyni Ragnarssyni stjórnarformanni Mýrdælings ehf. dags. 28. mars um að lán sem Mýrdælingi ehf. var veitt á árinu 1991 verði fellt niður eða því breytt í hlutafé. Samþykkt að fela starfsmönnum að vinna frekar að málinu og ræða við forsvarsmenn Mýrdælings ehf.
5. Hugmyndir um áherslubreytingar hjá sjóðnum
Fulltrúar tilnefndir af héraðsnefndum, sbr. 7. liður fundargerðar 202. fundar:
Kristján Einarsson, Árnessýsla,
Hafsteinn Jóhannesson, V-Skaftafellssýsla,
Ágúst Ingi Ólafsson, Rangárvallasýsla.
Framkvæmdastjóra falið að kalla nefndina saman.
6. Önnur mál.
Stjórnin samþykkti að þóknun fyrir setu á stjórnarfundum Atvinnuþróunarsjóðs verði 3% af þingfararkaupi á mánuði fyrir hvern fund. Formaður stjórnar fær 50% álag. Samþykktin gildir frá áramótum 2000/2001.
Erindi frá Glerverksmiðjunni Samverk ehf. dags. 7. maí 2001 þar sem tilkynnt er um forkaupsrétt á hlutaskírteinum. Samþykkt að framselja forkaupsrétt AÞS til Eignarhaldsfélags Suðurlands hf.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
____________________ ___________________ _____________________
Gísli Páll Pálsson Loftur Þorsteinsson Árni Jón Elíasson
____________________ ___________________ _____________________
Guðmundur Svavarsson Ingunn Guðmundsdóttir Róbert Jónsson
____________________
Sædís Íva Elíasdóttir
Fyrir stjórnarfund, eða kl. 14:00 – 16:00, er gert ráð fyrir að stjórnarmenn skoði atvinnufyrirtæki á svæðinu í fylgd Hafsteins Jóhannessonar sveitarstjóra í Vík. Eftir stjórnarfund, eða u.þ.b. kl. 18:00, er áætlaður fundur með hreppsnefnd Mýrdalshrepps og kl. 19:00 býður hreppsnefnd stjórn sjóðsins til kvöldverðar.
























