haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

22. febrúar. 2002 kl.10:53

211. fundur stjórnar Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands haldinn föstudaginn 15. febrúar árið 2002, kl. 15:00, á skrifstofu Rangárvallahrepps.

 

 Á fundinn voru mættir: Gísli Páll Pálsson, formaður, Loftur Þorsteinsson, Árni Jón Elíasson, Jónas Jónsson og Ingunn Guðmundsdóttir. Á fundinn mætti einnig Einar Sveinbjörnsson endurskoðandi, Róbert Jónsson framkvæmdastjóri sjóðsins og Sigurður Bjarnason sem ritaði fundargerð.
 
 
 
1. Fjárhagsstaða.
 
Banki 44,9 milljónir
Sjóðstr. 90 daga 6,2 milljónir
Inneign hjá Atgeir 8,8 milljónir
Samtals: 59,9 milljónir
 
Óafgreitt  1,7 milljónir
Samt.: 58,2 milljónir
 
 
2. Ársreikningur 2001 og áætlun fyrir 2002.
 
Einar Sveinbjörnsson endurskoðandi og Róbert Jónsson framkvæmdastjóri fóru yfir ársreikning sjóðsins fyrir árið 2001.
 
Stjórnin samþykkti að leggja reikninginn fyrir aðalfund sjóðsins.
 
Róbert Jónsson lagði fram drög að rekstraráætlun fyrir árið 2002.
 
Áætlunin samþykkt.
 
3. Málefni Atgeirs hf.
 
Gísli Páll Pálsson formaður og Einar Sveinbjörnsson fóru yfir stöðu viðskipta við Atgeir ehf. Fjallað var um viðskiptakröfur og ábyrgðir sem Atvinnuþróunarsjóur Suðurlands er með vegna Atgeirs ehf. Fyrir liggur að halda fund um málefni Atgeirs ehf. þann 23. febrúar 2002.
 
 
4. Verkefnayfirlit.
 
Starfsmenn sjóðsins gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið hefur verið að frá síðasta stjórnarfundi.
 
 
5. Lánsumsókn frá Flúðaplasti ehf.
 
Sótt er um 1,5 mkr. lán til byggingar á litlum færanlegum ferðaþjónustuhúsum sem eru að hluta úr plasti. Til tryggingar á láninu eru boðin tvö fullbúin hús.
 
Stjórnin telur sér ekki fært að veita Flúðaplasti ehf. lán til byggingar á litlum færanlegum ferðaþjónustuhúsm vegna þess að stjórnin telur veðin sem í boði eru ekki fasteignaveð.
 
 
6. Byggðaþróunarverkefni í V-Skaftafellssýslu.
 
Róbert Jónsson fór yfir stöðu byggðaþróunarverkefnisins í V-Skaftafellssýslu. Samkvæmt samningi um verkefnið átti því að ljúka 31. desember 2001.
 
Stjórnin samþykkti að halda verkefninu áfram samkvæmt fjárhagsramma verkefnisins.
 
 
7. Niðurstöður nefndar um hugsanlegar áherslubreytingar í starfsemi sjóðsins.
 
Róbert Jónsson kynnti niðurstöður nefndar sem hefur verið að fjalla um hugsanlegar áherslubreytingar á starfsemi Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands.
 
 
8. Aðalfundur sjóðsins 15. mars 2002 að Efri Brú í Grímsnesi.
 
Róbert Jónsson lagði fram drög að dagskrá aðalfundar Atvinnuþróunarsjóðs
 
 
9. Önnur mál:
 
Tekið fyrir erindi frá ferðaþjónustufyrirtækinu Ásgarði ehf. um að lengja í 20 ár lánstíma á lánum fyrirtækisins hjá sjóðnum að upphæð 4,8 mkr.

Samþykkt að lengja lánstímann í 15 ár.
 
Róbert Jónsson gerði grein fyrir stöðu láns hjá fyrirtækinu Mýrdælingi ehf. Fyrir lá tillaga að uppgjöri lánsins. Framkvæmdastjóra falið að ganga frá málinu samkvæmt fyrirliggjandi gögnum
 
Fleira ekki gert og fundi slitið.
 
 

Gísli Páll Pálsson Loftur Þorsteinsson Árni Jón Elíasson
 
 

Ingunn Guðmundsdóttir Róbert Jónsson Sigurður Bjarnason
 
 

Jónas Jónsson
 
 
 
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.