Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
18. febrúar. 2008 kl.10:17
273. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn mánudaginn 18. febrúar 2008 kl. 10:00, á Hellu.
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Gunnar Örn Marteinsson. Elliði Vignisson boðaði forföll.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Staða framkvæmdastjóra og skipulag starfseminnar næstu vikur.
Samþykkt var að auglýsa starf framkvæmdastjóra félagsins. Formanni og varaformanni stjórnar er falið að fá ráðningarfyrirtæki til að annast auglýsingu á starfinu og ráðningarferlið.
Formanni stjórnar er falið að hafa umsjón með rekstri félagsins þar til framkvæmdastjóri tekur til starfa.
2. Ársuppgjör 2007
Stjórnin samþykkir að hraða ársuppgjöri félagsins 2007 og felur formanni að hafa samráð við endurskoðanda félagsins um þá vinnu.
Fleiri mál ekki tekin fyrir
Fundi slitið kl. 11.40
Snorri Finnlaugsson Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir Gunnar Örn Marteinsson
























