haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

12. maí. 2000 kl.15:00

191. fundur Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands, haldinn föstudaginn 12. maí 2000, kl. 15:00 að Austurvegi 56, Selfossi.
 
 
Á fundinn voru mættir: Loftur Þorsteinsson, Fannar Jónasson, Árni Jón Elíasson og Sigurður Bjarnason (varamaður Gísla Páls). Á fundinn mættu einnig Róbert Jónsson, Sigurður Bjarnason og Einar Pálsson sem ritaði fundargerð.
 
 
1. Fjárhagsstaða.
Banki 24,7 milljónir
Sjóðstr. 90 daga 8,3 milljónir
Inneign hjá Atgeir 23,4 milljónir
56,4 milljónir
Óafgreitt < 7,4 milljónir>
Samt.: 49 milljónir
 
2. Verkefnayfirlit.
Starfsmenn sjóðsins gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem þeir eru að vinna að.
 
3. Lánsumsóknir.
a. Hótel Hvolsvöllur, Hvolsvelli.
Fyrirtækið sækir um lán að upphæð kr. 5.000.000,- vegna uppbyggingar á hótel- og veitingarekstri.
 
Afgreiðslu frestað.
 
b. Ferðaþjónustan Gullfossi (Brattholt), Biskupstungnahreppi.
Fyrirtækið sækir um lán að upphæð kr. 5.000.000,- vegna uppbyggingar á gisti- og veitingarekstri.
 
Samþykkt að veita umbeðið lán. Framkvæmdastjóra falið að ganga frá málinu ef viðunandi veð eru fyrir hendi.
 
4. Þjónustusamningur milli Atvinnuþróunarsjóðs og Eignarhaldsfélags Suðurlands hf.
 
Lögð fram drög að þjónustusamningi milli Atvinnuþróunarsjóðs og Eignarhalds-félags Suðurlands hf. Þar er m.a. gert ráð fyrir að sjóðurinn taki að sér allan daglegan rekstur fyrir Eignarhaldsfélagið og fái fyrir það ákveðna greiðslu á ári.
 
Samningurinn samþykktur samhljóða.
 
5. Önnur mál.
 
Engin önnur mál.
 
 
 
Fleira ekki gert og fundi slitið.
 
____________________ ___________________ _____________________
Loftur Þorsteinsson Fannar Jónasson Árni Jón Elíasson
 
____________________ ___________________ _____________________
Sigurður Bjarnason Róbert Jónsson Einar Pálsson
 
____________________
Sigurður Bjarnason
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.