Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
28. mars. 2008 kl.10:16
274. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 28. mars 2008 kl. 10:30, á Selfossi.
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Elliði Vignisson, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Gunnar Örn Marteinsson
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Ráðning framkvæmdastjóra AÞS
Alls sóttu 26 um stöðu framkvæmdastjóra.
Formanni falið að ganga til samninga við Sædísi Ívu Elíasdóttur um að hún taki að sér starf framkvæmdastjóra AÞS.
2. Ársreikningur AÞS 2007
Einar Sveinbjörnsson endurskoðandi félagsins kom til fundarins og fór yfir drög að ársreikningi félagsins 2007. Reikningurinn verður til afgreiðslu á næsta fundi stjórnar.
3. Erindi frá SASS varðandi fyrirkomulag skrifstofuhalds og húsnæðismála samtakanna
Fyrirliggjandi hugmyndir samræmast ekki framtíðarsýn stjórnar hvað varðar fyrirkomulag skrifstofuhalds og húsnæðismál AÞS. Vilji stjórnar er að efla sjálfstæði AÞS hvað slíkt varðar í stað þess að horfa til ferkari skuldbindandi samreksturs með öðrum stofnunum. Stjórn AÞS mun á hverjum tíma leita hagkvæmustu leiða til reksturs skrifstofu og húsnæðis.
4. Erindi frá SASS varðandi Markaðsstofu Suðurlands
Stjórn AÞS telur ekki forsendur fyrir þeirri aðkomu sem bent er á í erindi stjórnar SASS. Í ljósi eiginfjárstöðu AÞS er aðkoma að jafnstóru verkefni ekki fær nema að gengið verði á stofnframlög aðildarsveitarfélaga.
5. Erindi frá Háskólafélagi Suðurlands ehf varðandi rágjafartíma v. stefnumótunarvinnu
Stjórn AÞS telur mikla hagsmuni að vel takist til hvað varðar undirbúning Háskólafélags Suðurlands og er því reiðubúið til að tvöfalda þann fjölda ráðgjafatíma sem þegar er heimild fyrir.
6. Erindi frá Sveitarfélaginu Ölfus varðandi hugsanlegt aðsetur AÞS fyrir eitt stöðugildi í Þorlákshöfn
Afgreiðslu málsins frestað og málinu vísað til þeirrar stefnumótunar sem er framundan.
Fleiri mál ekki tekin fyrir
Fundi slitið kl. 13.30
Snorri Finnlaugsson Birna Borg Sigurgeirsdóttir Elliði Vignisson
Gunnar Örn Marteinsson Þorgils Torfi Jónsson
























