haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

01. nóvember. 2002 kl.08:08

222. fundur stjórnar Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands haldinn föstudaginn 1. nóvember árið 2002, kl. 13:00, að Austurvegi 56 á Selfossi.

 
 
Á fundinn voru mættir: Orri Hlöðversson, formaður, Árni Jón Elíasson, Einar Pálsson, Guðmundur Svavarsson og Sigurður Ingi Jóhannsson. Á fundinn mætti einnig Róbert Jónsson framkvæmdastjóri sjóðsins, Sigurður Bjarnason og Örn Þórðarson sem ritaði fundargerð.
Auk þess tók Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS tímabundið sæti á fundinum.
 
Orri Hlöðversson formaður stjórnar setti fundinn og bauð að gengið yrði til dagskrár.
 
Róbert Jónsson framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu sjóðsins.
 
1. Fjárhagsstaða.
 
Banki 54,1 milljónir
Sjóðstr. 90 daga 6,2 milljónir
Samtals: 60,3 milljónir
 
Óafgreitt  0,1 milljónir
Samt.: 60,2 milljónir
 
Framkvæmdastjóra var falið, í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár, að skoða ávöxtunarkosti.
 
2. Verkefnayfirlit.
 
Kynning á starfsemi Atvinnuþróunarsjóðs og Eignarhaldsfélagi Suðurlands hf. og verkefnayfirliti frestað.
 
3. Lánsumsókn frá PÍS ehf. í Vík.
 
Sótt er um 1,6 mkr. lán til fjárfestinga í atvinnuhúsnæði..
 
Ákveðið var að fresta afgreiðslu málsins og kalla eftir frekari gögnum frá umsækjanda.
 
 
 
4. Stefnumótun í Árnessýslu.
 
Lagt fram bréf ferðamálafulltrúa uppsveita Árnessýslu, dags. 24. september 2002, með ósk um þátttöku sjóðsins í endurskoðun stefnumótunar í ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu. Um er að ræða 150 vinnustundir.
 
Stjórnin samþykkti erindið.
 
5. Bréf frá SASS dagsett 3. október sl., með erindi frá Upplýsingamiðstöð Suðurlands.
 
Ákveðið var að fresta málinu fram yfir fjárhagsáætlunargerð.
 
6. Lánsumsókn frá Kjötmjöli ehf. Í Hraungerðishreppi.
 
Sótt er um 5,0 mkr. lán en lánið er hluti af fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins.
 
Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS, tók sæti á fundinum kl. 14:25 og gerði grein fyrir málinu fyrir hönd umsækjanda. Hann vék af fundi kl. 14:50.
 
Samþykkt var að verða við lánsbeiðninni.
 
7. Samningar við Byggðastofnun.
 
Formaður stjórnar gerði grein fyrir samningaviðræðum Byggðastofnunar og atvinnuþróunarfélaganna í landinu.
 
Samningagerð stendur yfir og stefnt er að því að henni ljúki fyrir næstu áramót. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á samningum.
 
 
8. Byggðaþróunarverkefni í Vestur-Skaftafellssýslu.
 
Fjallað um lokaskýrslu byggðaþróunarverkefnisins í Vestur-Skaftafellssýslu.
 
Stjórnin lýsti yfir ánægju með verkefnisskýrsluna.
Stjórnin lýsir sig tilbúna til að kanna möguleika á framkvæmd tillagna sem komu fram í niðurstöðukafla skýrslunnar.
Formanni stjórnar og framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.
 
 
 
 9. Önnur mál.
 
9.1 Lögð fram beiðni um veðleyfi að upphæð kr. 836 þús. og yfirtöku á áhvílandi láni sem hvílir á 3. veðrétti á fasteigninni Strembugötu 10, Vestmannaeyjum.
 
Ákveðið var að verða við beiðninni.
 
 
Fleira ekki gert og fundi slitið.
 
Orri Hlöðversson Árni Jón Elíasson Einar Pálsson
 
Guðmundur Svavarsson Sigurður Ingi Jóhannsson Róbert Jónsson
 
Sigurður Bjarnason Örn Þórðarson
 
 
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.