Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
07. maí. 2008 kl.12:16
276. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 7. maí 2008 kl. 14:00, að Minni-Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson. Einnig sátu fundinn Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS og Hrafn Sævaldsson, starfsmaður AÞS sem skrifaði fundargerð. Elliði Vignisson boðaði forföll.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
2. Útboð vegna samgangna til Vestmannaeyja, sbr. 271. fund AÞS, frá 17. janúar 2008
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir þá vinnu sem starfsmaður AÞS í Vestmannaeyjum hefur unnið við útboðið. Kynnt voru drög að uppgjöri milli AÞS og forsvarsmanna verkefnisins. Stjórn samþykkir framlögð drög. Framkvæmdastjóra AÞS er falið að innheimta skuld vegna vinnuframlags, til verkkaupa.
3. Styrkir félagsins
Stjórn AÞS samþykkir að auglýsa styrki til úthlutunar að upphæð allt að 5 milljónir króna vorið 2008. Framkvæmdastjóra AÞS er falið að undirbúa auglýsingu á styrkjum til úthlutunar á næstu dögum. Sama fyrirkomulag verður á umsóknarferli og var við síðustu úthlutun.
4. Fundaáætlun félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS lagði fram drög að fundaráætlun og er hún eftirfarandi:
277 fundur, haldinn 4. júní 2008 á Kirkjubæjarklaustri
278 fundur, haldinn 2. júlí 2008 í Flóahreppi
279 fundur, haldinn 3. september 2008 í Vestmannaeyjum
280 fundur, haldinn 1. október 2008 í Bláskógabyggð
281 fundur, haldinn 5. nóvember 2008 í Ásahreppi
282 fundur, haldinn 3. desember 2008 á Selfossi
Stjórn félagsins samþykkti fundaráætlunina.
5. Fundagögn félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS leggur til að útsending fundarboða, fundargagna og fundargerða verði einungis á rafrænu formi í framtíðinni. Frumrit fundargerða verða eftir sem áður undirrituð af fundarmönnum. Stjórnin samþykkir að hafa þennan hátt á varðandi fundarboð, fundargögn og fundargerðir.
6. Ársreikningur ársins 2007
Framkvæmdastjóri AÞS lagði fram drög að ársreikningi AÞS fyrir árið 2007. Stjórn félagsins samþykkti ársreikninginn með fyrirvara um að skoðunarmenn félagsins samþykki reikninga félagsins án athugasemda.
7. Önnur mál
a. Rætt var um fyrirhugaðan stefnumótunarfund félagsins, sem verður miðvikudaginn 14. maí 2008 á Hvolsvelli.
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 15.45
Snorri Finnlaugsson Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Gunnar Örn Marteinsson Þorgils Torfi Jónsson
Sigríður Þorgrímsdóttir Sædís Íva Elíasdóttir
_________________________________
Hrafn Sævaldsson
























