haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

12. september. 2003 kl.07:41

232. fundur stjórnar Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands haldinn föstudaginn 12. september 2003 kl. 15:00 í Vík í Mýrdal.

 
 


Á fundinn voru mættir: Orri Hlöðversson, formaður, Árni Jón Elíasson, Einar Pálsson, Pálína B. Jónsdóttir og Sveinn Pálsson. Á fundinn mættu einnig Bjarnheiður Jóhannsdóttir, nýr atvinnu og jafnréttisráðgjafi Suðurkjördæmis, Róbert Jónsson framkvæmdastjóri sjóðsins, Sigurður Bjarnason AÞS og Örn Þórðarson AÞS sem ritaði fundargerð.
 
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár fundarins:
 
 
Dagskrá:
 
1. Nýr atvinnu- og jafnréttisráðgjafi Suðurkjördæmis
Bjarnheiður Jóhannsdóttir, kynnti væntanlegt starf atvinnu- og jafnréttisráðgjafa Suðurkjördæmis en hún hóf störf 1. september sl. Bjarnheiður er starfsmaður Byggðastofnunar en starfið er fjármagnað af Byggðastofnun og félagsmálaráðuneyti og stendur yfir í tvö og hálft ár. Bjarnheiður er staðsett í Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn. Það var tillaga formanns stjórnar Atvinnuþróunarsjóðsins að ráðgjafinn yrði staðsettur á því svæði.
 
Stjórn sjóðsins bauð Bjarnheiði velkomna til samstarfs við sjóðinn.
 
 
2. Fjárhagsstaða.
Banki 77,8 milljónir
Sjóðstr. 90 daga 6,8 milljónir
Samtals: 84,6 milljónir
 
Óafgreitt 4,5 milljónir
Samt.: 80,1 milljónir
 
 
3. Verkefnastaða. Starfsmenn gerðu grein fyrir verkefnum sem unnið er að.
 
4. Lögð fram umsókn frá Jarðefnaiðnaði hf.
Lögð fram umsókn frá Jarðefnaiðnaði í Þorlákshöfn um 3.0 mkr. greiðslu frá sjóðnum sbr. samning aðila frá 9. júní 1998. Samkvæmt ársreikningi sjóðsins 2002 hefur Jarðefnaiðnaður greitt um 3.5 mkr. til Atvinnuþróunarsjóðs frá árinu 1998.
 
Sótt er um fjárhæðina til kaupa á notaðri þurrkunarsamstæðu, uppsetningu hennar og frágangi á aðstöðu.
 
Stjórnin frestar afgreiðslu og samþykkti að fela formanni og framkvæmdastjóra að skoða málið nánar.
 
Fundargerð upplesin og fundi slitið kl. 17:30
 
Orri Hlöðversson Árni Jón Elíasson Pálína B. Jónsdóttir
 
Einar Pálsson Sveinn Pálsson Róbert Jónsson
 
Sigurður Bjarnason AÞS Örn Þórðarson AÞS
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.