Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
02. júlí. 2008 kl.12:12
277. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 2. júlí 2008 kl. 13:00, á Þingborg, Flóahreppi
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Guðbjörg Jónsdóttir. Einnig sátu fundinn Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS, Hrafn Sævaldsson, starfsmaður AÞS og Steingerður Hreinsdóttir starfsmaður AÞS sem skrifaði fundargerð.
Birna Borg boðaði forföll.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Kynning á vinnu vegna styrkleikagreiningar sveitarfélaganna fjögurra sem eiga land að Þjórsá; Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Flóahreppur, Ásahreppur og Rangárþing Ytra
Hrafn Þórðarson kynnti vinnu sína fyrir stjórn og fulltrúum sveitarfélaganna og skilaði skýrslu.
2. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
3. Styrkir félagsins
Starfsmenn AÞS lögðu fram eftirfarandi tillögu til styrkveitinga sem var samþykkt.
• 250.000 Gljásteinn ehf. vefsíðugerð, auglýsingar, hönnun á auglýsingum
• 150.000 Hekluskart. Auglýsingar, markaðssetning efnisöflun
• 200.000 Lifandi hús. Heimasíða, myndataka, hönnun auglýsinga
• 250.000 Glæðir ehf. Þróun afurða úr bleikjuafskurði- hönnunarkostnaður
• 150.000 Go Travel Iceland. Auglýsingar, kynningaverkefni og ráðstefnur
• 150.000 Tré og List. Skilti, markaðssetning, vefsíða, uppsetning sýningar
• 150.000 Veiðisafnið ses. Hönnun sýningar
• 350.000 Listasmiðja.hönnun á húsnæði, heimasíða, kynningarefni
• 250.000 Ice Events. Heimasíða, auglýsingar
• 250.000 Þjónusturannsóknir. Markaðssetning, vefsíða, kynning bein markaðssetning
• 250.000 Góðir Hálsar ehf. hönnun vörumerkis og heimasíðu - markaðssetning
• 250.000 Lifandi Býli. Útlitshönnun á safni
• 250.000 Bókunarkerfi fyrir ferðaþjónustu. Auglýsingar og kynningarefni
• 250.000 Samfélagsvefur Skaftárhrepps. Þarfagreining, hönnun, sérfræðivinna
• 150.000 Íslenski bærinn. Efnisöflun, hönnun, einkennisstef, margmiðlunardiskur
• 250.000 Húfa. Vefsíðugerð, skiltagerð, auglýsingar
• 150.000 Handverkshúsið Hekla. Bein markaðssetning, merkingar
• 150.000 Glerskúlptúrar Gallerí . Þróunarvinna, kynningarefni, námskeið
• 250.000 Active Stable á Íslandi. Teikningar og skipulag, kynningarefni, áætlanagerð
• 250.000 Jeppar og allt og Leirbrot og gler. Þróun og hönnun á rafbúnaði fyrir útilýsingu
• 250.000 Jeppar og allt. Markaðssetning. Hönnun á lógói, Kynningarátak, markaðsátak
• 150.000 Kornmarkaður Suðurlands. Graskögglaframleiðsla.
• 250.000 Langamýri Vöruþróun úr rabbbarbara.
Alls bárust 32 umsóknir og af þeim uppfylltu 23 skilyrði fyrir styrk. Úthlutað var 5.000.000 kr. en alls var sótt um 18.137.000 kr.
4. Húsnæðismál
Lögð fram til kynningar skýrsla Auðhumlu með tillögu að Stofnana- og fræðasetri á Selfossi
5. Stefnumótunardagur
Lögð fram skýrsla frá Friðfinni Hermannsyni hjá Capacent
6. Starf framundan
Lagt fram minnisblað frá vinnudegi starfsmanna
7. Starfsmannamál
Auglýst var eftir verkefnastjóra/ráðgjafa með aðsetur á Selfossi. Borist hafa 14 umsóknir – Framkvæmdastjóra falið að ganga frá ráðningu í samráði við formann
8. Önnur mál
1. Útboð vegna samgangna til Vestmannaeyja
Á vormánuðum 2008 auglýsti Byggðastofnun verkefnastyrki til handa atvinnuþróunarfélögum í landinu. Þessir styrkir eru veittir til sérstakra verkefna á sviði byggða- og atvinnuþróunar. AÞS sótti um vegna vinnu Atvinnuþróunarfélags Suðurlands við „Útboð vegna samgangna til Vestmannaeyja“ sbr. 271. fund og 276. fund. Alls eru útlagðar vinnustundir Atvinnuþróunarfélagsins vegna verkefnisins til dagsins í dag 483 stundir. Styrkur fékkst frá Byggðastofnun til að mæta 463 stundum. Stjórn samþykkir að falla frá ákvörðun sinni frá 276. fundi um að innheimta hjá verkefninu vinnu þá sem fallið hefur á verkefnið til viðbótar við þær 300 klst. sem samþykktar voru á 271 fundi.
2. Skýrsla VSSV
Lögð var fram ársskýrsla VSSV. Formaður lýsti yfir ánægju sinni með greinagóða skýrslu.
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 15.45
Snorri Finnlaugsson Guðbjörg Jónsdóttir
Þorgils Torfi Jónsson Sædís Íva Elíasdóttir
Steingerður Hreinsdóttir Hrafn Sævaldsson
























