Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
17. september. 2004 kl.18:57
242. fundur stjórnar Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands haldinn föstudaginn 17. september 2004, kl. 13:45 í Félagsheimilinu Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Á fundinn voru mættir eftirtaldir: Orri Hlöðversson formaður stjórnar, Torfi Áskelsson, Sveinn Pálsson, Pálína Björk Jónsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson. Á fundinn mættu einnig Róbert Jónsson framkvæmdastjóri sjóðsins og starfsmennirnir Sigurður Bjarnason og Örn Þórðarson, sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fundinn og gekk til dagskrár.
Eftirfarandi var tekið fyrir:
1. Fjárhagsstaða
Banki 18,8 mkr.
Sjóðstreymi 8,3 mkr.
Samtals: 27,1 mkr.
Óafgreitt 0 mkr.
Samtals 27,1 mkr.
Fram kom hjá framkvæmdastjóra að erlent lán hjá KB banka að upphæð 70,2 miljónir króna var greitt upp 2. júlí 2004.
2. Verkefnayfirlit
Starfsmenn gerðu grein fyrir verkefnum sem unnið er að.
3. Lagt fram erindi frá E.B. hljóðkerfi ehf. sem óskar eftir breytingum á veðum fyrir láni sem fyrirtækið fékk hjá sjóðnum.
Stjórn samþykkir erindið.
4. Gerð grein fyrir málefni kvikmyndaverkefnisins Bjólfskviða
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu.
5. Lagt fram erindi frá klúbbnum Stróki, dagsett 3. ágúst 2004, þar sem sótt er um styrk til sjóðsins.
Stjórn ákvað að hafna erindinu.
6. Lagt fram bréf frá Snorra Birni Sigurðarsyni, forstöðumanni þróunarsviðs Byggðastofnunar, dagsett 25. ágúst 2004, vegna fréttar sem birtist í Fréttablaðinu 17. ágúst 2004.
Lagt fram til kynningar bréf Snorra.
7. Önnur mál.
Tillaga lögð fram um að næsti stjórnarfundur verði haldinn kl. 11:00, 22. október 2004 í Þorlákshöfn.
Stjórn samþykkti tillöguna.
Fundargerð upp lesin og fundi slitið kl. 15:40.
Orri Hlöðversson Sveinn Pálsson Pálína Björk Jónsdóttir
Sigurður Ingi Jóhannsson Torfi Áskellsson Róbert Jónsson
Örn Þórðarson Sigurður Bjarnason
























