Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
03. september. 2008 kl.12:09
278. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 3. september 2008 kl. 13:00, á Kaffi Kró, Vestmannaeyjum
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Elliði Vignisson og Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar. Einnig sátu fundinn Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS og starfsmenn AÞS, Hrafn Sævaldsson, Steingerður Hreinsdóttir og Eygló Harðardóttir sem skrifaði fundargerð.
Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Gunnar Örn Marteinsson boðuðu forföll.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins. Frekari umræðu frestað til næsta stjórnarfundar.
2. Bréf frá framkvæmdanefnd sveitarfélaganna fjögurra við Þjórsá.
Í tölvubréfi dagsettu 10. júlí sl. þakka sveitarfélögin Skeiða- og Gnjúpverjahreppur, Ásahreppur, Flóahreppur og Rangárþing ytra fyrir skýrslu sem unnin var um orkufrekan iðnað við Þjórsá og framlag AÞS til verkefnisins. Jafnframt óska þau eftir framhaldi á framlagi AÞS til verkefnisins í samræmi við reglur félagsins um verkefnastuðning. Stjórnin tekur jákvætt í að koma áfram að verkefninu, en afgreiðslu frestað þar til frekari upplýsingar liggja fyrir.
3. Aðalfundur 23. október nk.
Ársþing SASS verður haldið á Hvolsvelli dagana 23. og 24. október nk. Aðalfundur AÞS verður fyrsti fundurinn á dagskrá þingsins á fimmtudagsmorgninum. Framkvæmdastjóra var falið að undirbúa erindi sem yrðu flutt á aðalfundinum. Fjárhagsáætlun 2009 verður til umræðu og afgreiðslu á næsta stjórnarfundi, til að leggja fyrir aðalfundinn.
4. Starfið framundan
Minnisblað frá vinnudegi starfsmanna sem lagt var fram á 277. stjórnarfundi rifjað upp. Rætt var um framtíðarsýn og stefnumörkun AÞS. Stjórnin lýsir yfir vilja sínum til þess að sjálfstæði félagsins verði aukið, m.a. í húsnæðismálum og skrifstofuhaldi. Frekari umræða og tillögugerð verði við gerð fjárhagsáætlunar sem verður til afgreiðslu á næsta fundi stjórnar.
5. Fundur með Byggðastofnun.
Fundur með Byggðastofnun verður haldinn 25. september kl. 9.00. Staðsetning verður tilkynnt síðar.
Fundur með Byggðastofnun verður haldinn 25. september kl. 9.00. Staðsetning verður tilkynnt síðar.
6. Evrópuverkefni.
Innovative Trans-Atlantic Experience (iTREX) er verkefni þar sem ætlunin er að þróa netverk á milli aðila í ferðaþjónustu, þróa áfangastaðina, útbúa nýjar vörur sem höfða til ferðamanna og markaðsstefnu byggða á notkun internetsins. Lögð er áhersla á sjálfbæra þróun ferðamannastaðanna. Samþykkt að AÞS hafi forgöngu um að koma á verkefninu á þeim forsendum sem kynntar voru skv. minnisblaði og leggi fram allt að fjórar milljónir kr. í vinnuframlagi á þriggja ára tímabili (2008-2011).
7. Næsti stjórnarfundur.
Næsti stjórnarfundur er áætlaður þann 1. október nk. í Bláskógabyggð.
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 15.00
Snorri Finnlaugsson Elliði Vignisson
Þorgils Torfi Jónsson Sigríður Þorgrímsdóttir
Sædís Íva Elíasdóttir Hrafn Sævaldsson
Steingerður Hreinsdóttir Eygló Harðardóttir
























