haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

21. október. 2005 kl.12:10

252. fundur stjórnar Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands haldinn föstudaginn 21. október 2005 kl. 14:00 í Þorlákshöfn.

 

Á fundinn voru mættir: Orri Hlöðversson, formaður, Einar Pálsson, Sveinn Pálsson, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson og Sigurður Ingi Jóhannsson. Á fundinn mættu einnig Sigríður K. Þorgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi frá Byggðastofnun, Róbert Jónsson framkvæmdastjóri sjóðsins, Steingerður Hreinsdóttir og Örn Þórðarson sem ritaði fundargerð.
 
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár fundarins:
 
Nýr starfsmaður sjóðsins Steingerður Hreinsdóttir var boðin velkomin á fundinn.
 
1. Fjárhagsstaða
 
Banki 73,4 mkr.
Sjóðstr. 90 daga 8,3 mkr.
Samtals: 81,7 mkr.
 
Óafgreitt 0
Samtals.: 81,7 mkr.
 
2. Verkefnayfirlit.
Starfsmenn sjóðsins gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að.
 
3. Endurskoðun á samstarfi sunnlenskra sveitarfélaga.
Lögð fram til kynningar lokaskýrsla nefndar um “Endurskoðun á samstarfi sunnlenskra sveitarfélaga”.
 
4. Ráðstöfun peningalegra eigna sjóðsins í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á starfsemi sjóðsins.
Með vísan í 9. lið 246. stjórnarfundar ræddi stjórn ýmsar hugmyndir um ráðstöfun peningalegra eigna sjóðsins til uppbyggingar atvinnulífs á Suðurlandi.
 
5. Ósk um inngöngu Vestmannaeyjabæjar í sjóðinn.
Lagt fram bréf bæjarstjórans í Vestmannaeyjum, dags. 10. júlí 2005, þar sem óskað er eftir inngöngu sveitarfélagsins í sjóðinn. Stjórn vísar afgreiðslu umsóknarinnar til félagafundar sjóðsins sem til stendur að halda í lok nóvember n.k. þar sem tekin verður fyrir ráðstöfun á stofnsjóði Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á starfsemi sjóðsins.
 
6. Önnur mál:
Stjórn leggur til að félagafundur sjóðsins verði haldinn föstudaginn 25. nóvember 2005 á Kirkjubæjarklaustri kl. 10:00.
 
Stjórn samþykkir að styrkja námskeið í frumkvöðlafræðslu á Suðurlandi, að upphæð kr. 200.000.-, en námskeiðið er haldið á vegum Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands og Búnaðarsambands Suðurlands.

Lagt fram til umsagnar uppkast að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2006-2009. Stjórn tekur undir þær almennu áherslur sem lagðar eru fram í uppkastinu, og telur þær til þess fallnar að styrkja búsetu á landsbyggðinni. Einkum ber þar að nefna hugmyndir um fjölgun opinberra starfa, flutning verkefna út á landsbyggðina og eflingu atvinnuráðgjafar. Stjórn telur hins vegar sláandi hversu lítið ber á áherslum gagnvart Suðurlandi og saknar þess sérstaklega að ekki sé kveðið á um styrkingu landshlutakjarna á Suðurlandi.
 
 
Fundargerð upplesin og fundi slitið kl. 16:20

Orri Hlöðversson Guðmundur I. Gunnlaugsson Einar Pálsson
 
 

Sigurður Ingi Jóhannsson Sveinn Pálsson Róbert Jónsson
 
 

Örn Þórðarson Steingerður Hreinsdóttir
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.