Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
22. október. 2008 kl.12:06
279. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 22. október 2008 kl. 10:00, á Austurvegi 56, Selfossi
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson og Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar. Elliði Vignisson tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað frá Vestmannaeyjum. Einnig sat fundinn Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
2. Samráðsfundur Byggðastofnunar og AÞS
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fundi Byggðastofnunar og AÞS sem haldinn var 25. september sl. Þar kynntu starfsmenn Byggðastofnunar starfsemi stofnunarinnar og starfsmenn AÞS kynntu stöðu mála á starfsvæði sínu og starfsemi AÞS. Farið var yfir samning Byggðastofnunar og AÞS. Almenn ánægja var með fundinn af allra hálfu.
3. Verkefni sem unnið er að
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir þeim verkefnum sem starfsmenn AÞS eru að vinna að og því starfi sem framundan er.
4. Lógó AÞS
Kynnt tillaga að nýju lógói fyrir Atvinnuþróunarfélagið. Fyrirtækið Smart Media í Vestmannaeyjum hefur unnið að hönnun lógósins. Umæður urðu um lógóið sem var samþykkt samhljóða.
5. Markaðsstofa á Suðurlandi
Lögð fram tillaga um að AÞS leggi 2 mkr. í stofnfé „Suðurlandsstofu ses“ ásamt Ferðamálasamtökum Suðurlands og Markaðsstofu Suðurlands ehf. Hlutverk „Suðurlandsstofu verður að markaðssetja Suðurland í heild sinni. Stjórn samþykkir samhljóða 2 mkr. í stofnframlag gegn 2 fulltrúum í stjórn.
6. Erindi frá Sveitarfélaginu Ölfus
Lagt fram bréf frá Sveitarfélaginu Ölfusi dags. 17. október sl. þar sem Ölfus óskar eftir að AÞS leggi fram fjármagn og vinnu til að tryggja stöðugildi atvinnufulltrúa í Ölfusi, tímabundið eða a.m.k. þrjú ár til að vinna að framgangi atvinnumála á svæðinu. Stjórn tekur vel í erindið og samþykkir að fela framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélagsins að vinna að því að koma á fót átaksverkefni með aðkomu Iðnaðarráðuneytis og fleiri aðila sem tryggi stöðugildi starfsmanns sem hafi það hlutverk að vinna að verkefnum um nýtingu sunnlenskrar orku til atvinnuuppbyggingar á Suðurlandi.
7. Ársfundur AÞS
Ársfundur AÞS verður haldinn 20. nóvember n.k. kl. 10 á Hvolsvelli. Farið yfir væntanlega dagskrá fundarins.
a. Fjárhagsáætlun
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun. Stjórn samþykkir fjárhagsáætlun 2009 sem lögð verður fyrir ársfundinn.
b. Starfsskýrsla
Lögð fram starfsskýrsla AÞS þar sem gerð er grein fyrir starfsemi áranna 2007 og 2008 það sem af er ásamt starfsáætlun fyrir árið 2009. Starfsskýrslan samþykkt.
c. Hagræn áhrif Bakkafjöru, Kolfinna Jóhannesdóttir
Kolfinna Jóhannesdóttir, rannsóknarsérfræðingur á Bifröst mun halda erindi um hagræn áhrif Bakkafjöruhafnar .
8. Framtíð félagsins
Framtíð félagsins rædd. Stjórn horfir björtum augum til framtíðar í starfsemi félagsins.
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 13.00
Snorri Finnlaugsson Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Þorgils Torfi Jónsson Gunnar Örn Marteinsson
Sigríður Þorgrímsdóttir Sædís Íva Elíasdóttir
























