haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

20. október. 2006 kl.11:37

262. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 20. október 2006 kl. 14:00 í Ráðhúsi Vestmannaeyja.

 
 
Á fundinn voru mættir: Snorri Finnlaugsson formaður, Elliði Vignisson, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Guðbjörg Jónsdóttir. Fundinn sátu einnig Róbert Jónsson framkvæmdastjóri, Hreinn Sigmarsson og Hrafn Sævaldsson sem ritaði fundargerð.
 
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
 
1. Nýr starfsmaður félagsins
Hreinn Sigmarsson gerði grein fyrir bakgrunni sínum og verkefnum fyrstu dagana í starfi.
 
2. Fjárhagsstaða
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins.
 
3. Verkefni starfsmanna
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að og hvaða verkefni eru framundan.
 
Starfsmenn vöktu athygli á því að verkefni félagsins eru að verða umfangsmeiri, m.a. vegna þátttöku í Vaxtarsamningi Suðurlands og Vestmannaeyja.
 
Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að meta hverju sinni, hvort heimila eigi meira en 35 klst. endurgjaldslausa þjónustu félagsins og gera stjórn grein fyrir því á næsta stjórnarfundi félagsins eftir að heimild hefur verið veitt.
 
4. Fulltrúar félagsins í verkefnisstjórn um háskólanám á Suðurlandi
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands samþykkir að fulltrúar félagsins verði: 1) Páll Marvin Jónsson frá Vestmannaeyjum, varamaður hans er Bjarki Brynjarsson. 2) Stefanía Katrín Karlsdóttir frá Sveitarfélaginu Árborg, varamaður hennar er Sigríður Lára Ásbergsdóttir frá Sveitarfélaginu Ölfus. 3) Örn Þórðarson frá Rangárþingi ytra, varamaður hans er Jóna Sigurbjartsdóttir frá Skaftárhreppi.
 
5. Vaxtarsamningur Suðurlands og Vestmannaeyja, staða verkefnis
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins.
 
6. Fulltrúi og varamaður í stjórn Vaxtarsamningsins
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands samþykkir að fulltrúi félagsins í stjórn Vaxtarsamningsins verði Snorri Finnlaugsson, formaður stjórnar AÞS og varamaður hans verði Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður stjórnar AÞS.
 
7. Lagt fram erindi frá Sveitarfélaginu Ölfuss sem óskar eftir styrk að upphæð 1,5 mkr. til rannsókna og þróunarstarfsemi vegna vikurs.
 
Jafnframt liggja fyrir óafgreiddar eldri umsóknir frá Kötluvikri ehf. og Jarðefnaiðnaði hf.
 
Umsókn frá Kötluvikri hafnað, með vísan í úrskurð iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins, dagsett 2. apríl 2003.
 
Stjórn félagsins felur framkvæmdastjóra að taka umsóknir frá Sveitarfélaginu Ölfus og Jarðefnaiðnaði hf. til efnislegrar meðferðar, fyrir næsta stjórnarfund félagsins, sem verður 8. desember 2006.
 
8. Önnur mál:
a. Lagt fram bréf frá Fræðsluneti Suðurlands, dagsett 19.10.2006. Þar sem gerð er tillaga um að aðalfulltrúi félagsins og fleiri aðila í stjórn Fræðslunetsins komi frá Sambandi sunnlenskra kvenna og að varamaður verði tilnefndur af Héraðssambandinu Skarphéðni. Tillagan er samþykkt.
b. Formanni og varaformanni ásamt framkvæmdastjóra er falið að skoða húsnæðismál og rekstrarlegt umhverfi félagsins og skila áliti til stjórnar.
 
Ekki voru fleiri mál tekin fyrir.
 
 
Fundargerð upplesin og fundi slitið kl. 15:56
 
Snorri Finnlaugsson Elliði Vignisson Þorgils Torfi Jónsson
 
Birna Borg Sigurgeirsdóttir Guðbjörg Jónsdóttir Róbert Jónsson
 
Hreinn Sigmarsson Hrafn Sævaldsson
 
 
 
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.