haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

08. desember. 2006 kl.11:18

263. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 8. desember 2006 kl. 13:00 á Flúðum.

 
 
Á fundinn voru mættir: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Sigríður Þorgrímsdóttir fyrir hönd Byggðastofnunar. Fundinn sátu einnig Róbert Jónsson framkvæmdastjóri og Steingerður Hreinsdóttir sem ritaði fundargerð.
 
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
1. Fjárhagsstaða
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins.
 
2. Verkefni starfsmanna
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er.
 
3. Fjallað um erindi frá Sveitarfélaginu Ölfuss og erindi Jarðefnaiðnaðar sbr. 7. liður fundargerðar 262. stjórnarfundar.
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands samþykkir að hafna innsendu erindi frá Sveitarfélaginu Ölfuss á þeim forsendum að verkefnið samræmist ekki tilgangi sjóðsins.
Stjórn samþykkir að boða forsvarsmenn Jarðefnaiðnaðar á næsta stjórnarfund sem haldinn verður í Þorlákshöfn 19. janúar 2007 til að gera grein fyrir erindi sínu.
 
4. Lagt fram bréf frá Heklusetrinu á Leirubakka.
Stjórn samþykkir að vísa erindinu til væntanlegs framkvæmdaráðs Vaxtarsamnings Suðurlands.
 
5. Nýr starfsmaður félagsins.
Hreinn Sigmarsson hefur látið af störfum hjá félaginu en hann fékk tilboð um talsvert betur launað starf. Stjórnarformaður og framkvæmdastjóri eru að ræða við áhugaverða aðila um starf hjá félaginu. Stjórn felur þeim að ljúka ráðningu.
 
6. Önnur mál:
a. Samþykkt að AÞS standi að atvinnumálaráðstefnu á Suðurlandi sem áformað er að halda 23. mars 2007 ásamt atvinnumálanefnd SASS.
 
Ekki voru fleiri mál tekin fyrir.
 
Fundargerð upplesin og fundi slitið kl. 14:15
 
 Snorri Finnlaugsson Þorgils Torfi Jónsson Birna Borg Sigurgeirsdóttir
 
Sigurður Ingi Jóhannsson Sigríður Þorgrímsdóttir Róbert Jónsson
 
Steingerður Hreinsdóttir
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.