haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

12. janúar. 2007 kl.10:47

264. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 12. janúar 2007 kl. 13:30 í Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn.

 
 
Á fundinn voru mættir: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Elliði Vignisson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Sigríður Þorgrímsdóttir fyrir hönd Byggðastofnunar. Fundinn sátu einnig Róbert Jónsson framkvæmdastjóri og Steingerður Hreinsdóttir sem ritaði fundargerð.
 
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:

1. Jarðefnaiðnaður ehf.
Forsvarsmenn Jarðefnaiðnaðar ehf. kynntu starfsemi fyrirtækisins og gerðu grein fyrir erindi sínu til félagsins sem dagsett er 5. desember 2006, sbr. 3. lið fundargerðar 263. stjórnarfundar. Framkvæmdastjóra falið að leggja mat á umsókn Jarðefnaiðnaðar ehf. og stefnt að því að stjórnin afgreiði hana á næsta fundi.
 
2. Fjárhagsstaða
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins.
 
3. Verkefni starfsmanna.
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að.
 
4. Verkefnisstjórn um háskólanám á Suðurlandi.
Stefanía K. Karlsdóttir formaður verkefnisstjórnar um háskólanám á Suðurlandi sagði sig úr stjórninni vegna breyttra aðstæðna. Formaður setti fram þá tillögu að Birna Borg Sigurgeirsdóttir verði nýr fulltrúi í verkefnisstjórn og var það samþykkt einróma.
Framkvæmdarstjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins og kynnti næstu skref.
 
5. Vaxtarsamningur Suðurlands og Vestmannaeyja.
Framkvæmdastjóri lagði fram verksamning á milli Vaxtarsamnings Suðurlands og Vestmannaeyja og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands og gerði grein fyrir stöðu verkefnisins. Samningurinn var samþykktur af stjórn.
 
6. Önnur mál:
 
a) Eyjan okkar – áformað er að halda sýningu þar sem Vestmannaeyjar eru kynntar fyrir landi og þjóð. Hugmyndir eru uppi um að taka þátt í kynningunni með Rannsókna- og fræðasetrinu í Vestmannaeyjum .Stjórn hefur áhuga á verkefnunu og felur framkvæmdarstjóra að vinna að málinu.
 
b) Umræður um framkvæmdasjóð félagsins, sem komið var á fót 1. janúar 2006, og lagt fram yfirlit um hlut hvers sveitarfélags í sjóðnum.
 
c) Erindi frá stjórn SASS:
Á fundi stjórnar SASS 10. janúar 2007 var formanni og varaformanni falið að ræða við fulltrúa stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands um starf framkvæmdastjóra AÞS og SASS.
Formanni og varaformanni stjórnar AÞS er falið að ræða við fulltrúa SASS um málið.
 
 
Fundi slitið kl. 16:15
 
Snorri Finnlaugsson Þorgils Torfi Jónsson Birna Borg Sigurgeirsdóttir
 
Sigurður Ingi Jóhannsson Sigríður Þorgrímsdóttir Elliði Vignisson
 
Róbert Jónsson Steingerður Hreinsdóttir
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.