haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

02. mars. 2007 kl.10:45

265. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 2. mars 2007 kl. 13:30 á Hellu.

 

Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Elliði Vignisson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Sigríður Þorgrímsdóttir fyrir hönd Byggðastofnunar. Fundinn sátu einnig Róbert Jónsson framkvæmdastjóri, Hrafn Sævaldsson, Sædís Íva Elíasdóttir og Steingerður Hreinsdóttir sem ritaði fundargerð.
 
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
 
1. Fjárhagsstaða
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins.
 
2. Verkefni starfsmanna
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að.
 
3. Háskólanám á Suðurlandi
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins.
 
4. Vaxtarsamningur Suðurlands og Vestmannaeyja
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu verkefna og klasamótunnar innan Vaxtarsamningsins og kynnti rekstraráætlun samningsins.
 
5. Lagt fram bréf frá atvinnumálanefnd SASS
Atvinnumálanefnd SASS óskar eftir framlagi vegna kostnaðar við málþing um atvinnumál sem haldið verður 30. mars nk. sbr. 6. liður fundargerðar 263. stjórnarfundar.
Stjórn samþykkti að styrkja verkefnið með 300.000 kr. framlagi.
 
6. Jarðefnaiðnaður ehf.
Framkvæmdastjóri lagði fram mat á umsókn Jarðefnaiðnaðar ehf. um verkefnastyrk, sbr. 1. liður fundargerðar 264. stjórnarfundar og 3. liður fundargerðar 263. stjórnarfundar.
Stjórnin samþykkti að styrkja verkefni Jarðefnaiðnaðar með 4,7 mkr. framlagi.
 
7. Auglýstar styrkveitingar félagsins í mars
Stjórnin samþykkti að auglýsa styrki til atvinnuþróunar á Suðurlandi, að upphæð 4,7 mkr.
 
8. Starfsemi og skipulag SASS og AÞS
Stjórn AÞS samþykkir að veita formanni og varaformanni heimild til að ganga til samninga við Kristján Vigfússon rekstrarráðgjafa um að gera úttekt á starfaskipulagi AÞS og SASS og kostum þess og göllum að samræma starfsemina enn meira en nú er.
Úttektin verði unnin í samvinnu AÞS og SASS og liggi niðurstaða hennar fyrir svo fljótt sem mögulegt er.
 
 
9. Önnur mál
9.1 Framkvæmdastjóri kynnti nýjan starfsmann félagsins, Sædísi Ívu Elíasdóttur. Sædís Íva mun hefja störf þann 1. apríl n.k.
 
9.2 Stjórnin samþykkti að segja upp samningnum við BVT í Vík um ráðgjafarverkefni í V-Skaftafellssýslu þar sem nýr starfsmaður félagsins mun verða að hluta til staðsettur á svæðinu.
 
 
Fundi slitið kl. 16:15
 
Snorri Finnlaugsson Þorgils Torfi Jónsson Birna Borg Sigurgeirsdóttir
 
Sigurður Ingi Jóhannsson Sigríður Þorgrímsdóttir Elliði Vignisson
 
 
______________________ ______________________ ____________________
Hrafn Sævaldsson Sædís Íva Elíasdóttir Róbert Jónsson
 
 
_____________________
Steingerður Hreinsdóttir
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.