haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

27. april. 2007 kl.10:44

266. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 27. apríl 2007 kl. 13:30 á Hótel Selfossi.

 

Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Elliði Vignisson, Guðbjörg Jónsdóttir og Sigríður Þorgrímsdóttir fyrir hönd Byggðastofnunar. Fundinn sátu einnig Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi félagsins, Róbert Jónsson framkvæmdastjóri, Hrafn Sævaldsson og Steingerður Hreinsdóttir sem ritaði fundargerð.
 
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
 
1. Ársreikningur Atvinnuþróunarfélagsins.
Endurskoðandi félagsins gerði grein fyrir niðurstöðum reikningsins.
Stjórnin samþykkti reikninginn og skrifaði undir.
 
Einar Sveinbjörnsson vék af fundi kl. 14:20
 
2. Fjárhagsstaða
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins.
 
3. Verkefni starfsmanna
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að.
 
4. Háskólanám á Suðurlandi
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins. Framkvæmdastjóra er falið að óska eftir því við Svein Aðalsteinsson, verkefnisstjóra, að hann mæti á næsta stjórnarfund AÞS og kynni stöðu verkefnisins.
 
5. Vaxtarsamningur Suðurlands og Vestmannaeyja
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu verkefna og klasamótunnar innan Vaxtarsamningsins.
 
6. Kammerkór Suðurlands umsókn um styrk
Lagt fram erindi, dags. 27. febrúar 2007, sem er styrkumsókn frá Kammerkór Suðurlands. Stjórnin samþykkti vísa umsókninni til auglýstra styrkveitinga félagsins.
 
7. Glæðir ehf.
Lagt fram bréf frá Glæði ehf. á Kirkjubæjarklaustri, dags. 3. mars 2007, sem óskar eftir því að stjórn Atvinnuþróunarfélagsins samþykki að breyta láni sem Glæðir ehf. er með hjá félaginu, upphaflega að upphæð 5,0 mkr., í hlutafé.
Stjórnin samþykkti að óska eftir að lagður verði fram ársreikningur Glæðis ehf. fyrir árið 2006.
 
8. Önnur mál
8.1 Fram hefur komið að rekstrarhagnaður Fræðslunets Suðurlands á árinu 2006 var 9,7 mkr. Að ósk Fræðslunetsins styrkti Atvinnuþróunarfélagið starfsemi Fræðslunetsins um 5,0 mkr. á árinu 2006.
Stjórnin samþykkti að fela framkvæmdastjóra að óska eftir skýringum á því af hverju Fræðslunetið fór fram á fjárframlög frá Atvinnuþróunarfélaginu árið 2006 vegna bágrar fjárhagsstöðu.
 
8.2 Framkvæmdastjóri kynnti ferð Byggðastofnunar og atvinnuþróunarfélaga landsins til Danmerkur.
 
 
 
Fundi slitið kl. 15:30
 
 
 
Snorri Finnlaugsson Þorgils Torfi Jónsson Guðbjörg Jónsdóttir
 
Sigríður Þorgrímsdóttir Elliði Vignisson Róbert Jónsson
 
Hrafn Sævaldsson Steingerður Hreinsdóttir
 
 
 
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.