Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
10. nóvember. 2011 kl.17:09
304. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn fimmtudaginn 10. nóvember 2011 kl. 12:00 á Austurvegi 56, Selfossi
Á fundinn voru mætt: Gunnar Örn Marteinsson, formaður, Unnur Þormóðsdóttir, Helgi Haraldsson og Páll Marvin Jónsson. Guðlaug Ósk Svansdóttir og Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar boðuðu forföll. Einnig sat fundinn Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fundinn og bauð Pál Marvin sérstaklega velkominn.
1. Fjármál félagsins
Framkvæmdastjóri lagði fram samanburð á áætlun 2011 og rauntölum úr bókhaldi m.v. 31.10.2011 og gerði grein fyrir fjármálum félagsins. Staða á rekstri félagsins er í samræmi við áætlunina.
2. Verkefni starfsmanna
Framkvæmdastjóri kynnti minnisblað um verkefni starfsmanna í október.
3. Bréf Skipulagsstofnunar dags. 25. október 2011
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar þar sem Atvinnuþróunarfélaginu er gefinn kostur á að skipa fulltrúa á samráðsvettvang við gerð landsskipulagsstefnu. Stjórn samþykkir að Sædís Íva verði fulltrúi félagsins í samstarfshópnum.
4. Fundarskipulag framundan
Stjórn samþykkti að fundir stjórnar verði haldnir fyrsta mánudag í mánuði, annan hvern mánuð kl. 11.30. Í janúar verði fundurinn þó annan mánudag, þann 9. janúar.
5. Skipað í starfshóp samkvæmt ákvörðun ársþings SASS
Á ársþingi SASS var samþykkt eftirfarandi tillaga: „Allsherjarnefnd leggur til að stjórn SASS og stjórn AÞS verði falið að skipa starfshóp sem hafi það að markmiði að sameina SASS og AÞS. Fyrir er starfandi starfshópur um eflingu sveitarstjórnarstigsins á Suðurlandi og verði honum falið að vinna úr efni skýrslunnar.” Stjórn samþykkir að skipa Gunnar Örn, Unni og Guðlaugu Ósk í starfshópinn f.h. Atvinnuþróunarfélagsins.
6. Önnur mál
Engin önnur mál borin upp.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13.10
Gunnar Örn Marteinsson
Unnur Þormóðsdóttir
Helgi Haraldsson
Páll Marvin Jónsson
Sædís Íva Elíasdóttir
























