haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

06. júlí. 2007 kl.10:39

268. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 6. júlí 2007 kl. 14:00 á Hótel Örk, Hveragerði

 
 
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Guðbjörg Jónsdóttir. Elliði Vignisson boðaði forföll. Fundinn sátu einnig Sigríður Þorgrímsdóttir fyrir hönd Byggðastofnunar, Róbert Jónsson framkvæmdastjóri AÞS og Sædís Íva Elíasdóttir sem ritaði fundargerð.
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
1. Fjárhagsstaða.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins.
 
2. Verkefni starfsmanna.
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að.
 
3. Vaxtarsamningur Suðurlands og Vestmannaeyja.
Starfsmenn AÞS gerðu grein fyrir stöðu verkefna innan Vaxtarsamningsins.
 
4. Styrkveitingar í haust. Lögð fram tillaga að nýjum matsreglum á umsóknir um styrki.
Formaður lagði fram tillögu um að auglýsa eftir styrkumsóknum í september n.k. að upphæð kr. 5 milljónir. Sædís Íva kynnti tillögur að nýjum matsreglum vegna umsókna. Stjórn samþykkir að auglýsa styrkveitingar sbr. tillögu formanns. Einnig samþykktar nýjar matsreglur.
 
5. Lagt fram bréf Byggðastofnunar, dags. 6. júní 2007, sem er uppsögn á samningi við Atvinnuþróunarfélagið um atvinnu- og byggðaþróun.
 
6. Lagt fram bréf frá Guðmundi Pétri Guðgeirssyni, eiganda BVT í Vík, dags. 19. júní 2007, sem óskar eftir greiðslu vegna slita á samningi BVT og Atvinnuþróunarfélagsins í vor.
Stjórn samþykkir að greiða fyrir sérfræðiráðgjöf frá BVT ehf. að upphæð kr. 329.809.- án VSK.
 
7. Lagður fram ársreikningur Glæðis ehf. á Kirkjubæjarklaustri sem óskar eftir að lán félagsins frá Atvinnuþróunarfélaginu verði breytt í hlutafé sbr. 7. liður fundargerðar 266. stjórnarfundar.
Hlutverk Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er ekki lengur að kaupa og/eða eiga hlutafé í félögum. Stjórnin hafnar því erindinu.
 
8. Önnur mál:
Rætt um kynningarmál á Atvinnuþróunarfélaginu og Vaxtarsamningnum.
 
 
Fundi slitið kl. 15.10
 
 
Snorri Finnlaugsson Þorgils Torfi Jónsson Birna Borg Sigurgeirsd.
 
Guðbjörg Jónsdóttir Sigríður Þorgrímsdóttir Róbert Jónsson
 
Sædís Íva Elíasdóttir
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.