Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
13. april. 2011 kl.11:31
299. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn í síma mánudaginn 28. mars 2011 kl. 15:30
Í fundinum tóku þátt: Gunnar Örn Marteinsson, formaður, Unnur Þormóðsdóttir, Guðlaug Ósk Svansdóttir, Elliði Vignisson og Helgi Haraldsson. Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar boðaði forföll. Einnig tók þátt Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Erindi frá Klausturbleikju ehf.
Erindi barst frá Birgi Þórissyni þann 18. mars 2011 f.h. Klausturbleikju ehf. og Hjalta Halldórssyni þann 25. mars 2011 vegna skuldabréfs í eigu Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, skuldari er þrotabú Glæðis ehf.
Í bréfi Birgis kemur fram ósk um að gerð verði skuldaraskipti á bréfinu sem nú stendur í um 11,7 milljónum með áföllnum vöxtum og að nýr skuldari verði Klausturbleikja ehf. kt. 660290-1849. Jafnframt er óskað eftir að skilmálar þeir sem koma fram nú í veðskuldabréfinu haldi sér óbreyttir.
Í tölvubréfi Hjalta eru sett fram tvö mismunandi tilboð:
a) Skuldaraskipti verði höfð á láninu en strax að því loknu verði greiddar 2 milljónir króna inná lánið. Skuldabréfið standi að öðru leyti óbreytt eins og skilmálar þess kveða á um.
a. /eða
b) Skuldaraskipti verði höfð á láninu en strax að því loknu kaupi Fishproducts Iceland ehf. skuldabréfið á 8 milljónir króna.
Stjórn samþykkir að gerð verði skuldaraskipti á ofangreindu veðskuldabréfi með því skilyrði að Fishproducts Iceland ehf. kaupi veðskuldabréfið á kr. 9 milljónir. Með þessu er Atvinnuþróunarfélagið að gefa eftir 23% af uppreiknuðu verði bréfsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.00
Gunnar Örn Marteinsson
Unnur Þormóðsdóttir
Guðlaug Ósk Svansdóttir
Helgi Haraldsson
Elliði Vignisson
Sædís Íva Elíasdóttir
























