Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
17. ágúst. 2010 kl.14:13
294. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn mánudaginn 16. ágúst 2010 kl. 10:00 á Austurvegi 56, Selfossi
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Elliði Vignisson, Guðbjörg Jónsdóttir og Sveinn Pálsson. Gunnar Örn Marteinsson, Þorgils Torfi Jónsson og Sigríður Þorgrímsdóttir boðuðu forföll.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Breytingar á samþykktum félagsins
Stjórn samþykkir að leggja eftirfarandi tillögur að breytingum á samþykktum félagsins fyrir ársfund AÞS þann 13. september n.k.
Grein 7.1 er
Sækist sveitarfélag eftir aðild að AÞS skal það senda umsókn til stjórnar eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund og skal leggja umsóknina fyrir aðalfund. Meirihluta atkvæða þarf fyrir samþykki um aðild. Ef umsókn um aðild er samþykkt skal hún taka gildi næstu áramót eftir aðalfund.
Grein 7.1 verði
Sækist sveitarfélag eftir aðild að AÞS skal það senda umsókn til stjórnar eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund og skal leggja umsóknina fyrir aðalfund. Meirihluta atkvæða þarf fyrir samþykki um aðild. Ef umsókn um aðild er samþykkt skal hún taka gildi næstu mánaðarmót eftir aðalfund. Árgjöld sbr. grein 6.1. í samþykktum þessum skulu þá greiðast í réttu hlutfalli við þann mánaðarfjölda sem eftir lifir á því ári sem sveitarfélagið fær aðild.
Bætt verði inn grein 7.6
7.6
Óski sveitarfélag sem gerist aðili að AÞS skv. grein 7.5 eftir því að verða fullgildur eignaraðili að eigin fé AÞS ber því að greiða, hlutfall af eigin fé AÞS m.v. íbúafjölda, hvort tveggja eins og það stóð um síðustu áramót fyrir inngöngu. Til frádráttar komi þá þegar greitt viðbótarframlag.
Einnig samþykkir stjórn að leggja fram tillögu að bráðabirgðaákvæði:
Ákvæði til bráðabirgða samþykkt á aðalfundi 13. september 2010
Þrátt fyrir ákvæði greinar 6.1 skulu Aðildarsveitarfélög AÞS verja 0,25% af útsvars- og fasteignatekjum sínum til AÞS á árinu 2011.
2. Fjárhagsáætlun 2011
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2011. Stjórn samþykkir fjárhagsáætlun 2011 sem lögð verður fyrir ársfundinn að því viðbættu að framlög til styrkveitinga verði aukin um 5 milljónir.
3. Önnur mál
a) Bréf frá Vestmannaeyjabæ dagsett 22. október 2009
Stjórn fjallaði um málið á fundi 4. nóvember 2009 en ákveðið var að fresta afgreiðslu í tengslum við tillögur að breytingum á samþykktum félagsins. Stjórn samþykkir að bjóða Vestmannaeyjabæ að breyta samningi sínum um inngöngu í AÞS í samræmi við grein 7.6 í samþykktum félagsins að því gefnu að tillaga stjórnarinnar, um breytingar á samþykktum, verði samþykkt á ársfundinum. Lagðir hafa verið fram útreikningar unnir af Einari Sveinbjörnssyni endurskoðanda sem stjórnarmenn eru sammála um að gengið verði útfrá. Til frádráttar komi þær greiðslur sem VM hefur þegar greitt sem viðbótargreiðslur s.l. ára.
Þorvaldur þakkaði stjórn fyrir gott samstarf á starfsárinu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.30
Þorvaldur Guðmundsson
Elliði Vignisson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Guðbjörg Jónsdóttir
Sveinn Pálsson
Sædís Íva Elíasdóttir
























