Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
08. júlí. 2010 kl.11:47
293. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 7. júlí 2010 kl. 10:00 á Austurvegi 56, Selfossi
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, varamaður og Sigríður Þorgrímsdóttir. Elliði Vignisson tók þátt í fundinum í gegn um fjarfundarbúnað.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
2. Verkefni starfsmanna
Lagt fram minnisblað um verkefni starfsmanna fyrir mars og apríl. Góð umræða varð um verkefnin.
3. Breytingar á samþykktum félagsins
Formaður lagði fram samþykktir félagsins með tillögum að breytingum. Farið yfir þá liði sem þarf að breyta. Samþykkt að fresta afgreiðslu til næsta fundar.
Elliði Vignisson lagði fram eftirfarandi bókun: “Hef áður lýst þeirri skoðun minni að eðlilegast væri að vera með eina stjórn yfir því mikla og góða samstarfi sem á sér stað innan SASS og AÞS. Þannig næðist aukin skilvirkni í starfi auk umtalsverðs hagræðis í rekstri. Sú leið að fjölga í stjórn AÞS og samræma hana við það sem gerist í stjórn SASS er skref í þá átt. Hvet því sveitarstjórnarfólk á starfssvæði SASS og AÞS til að hugleiða vandlega kosti þess að sameina starf AÞS og SASS í eina stjórnsýsluheild.”
4. Fjárhagsáætlun 2011
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2011 til kynningar. Farið yfir einstaka liði áætlunarinnar.
5. Stöðugildi á Hellu
Stjórn samþykkir að framlengja ráðningu starfsmanns í 5. stöðugildinu út árið 2011.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12.15
Þorvaldur Guðmundsson
Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Guðbjörg Jónsdóttir
Elliði Vignisson
Sigríður Þorgrímsdóttir
Sædís Íva Elíasdóttir
























