Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
12. október. 2007 kl.10:36
269. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 7. september 2007 kl. 13:30, í Árnesi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Sigurður Ingi Jónsson, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Elliði Vignisson. Fundinn sátu einnig Sigríður Þorgrímsdóttir fyrir hönd Byggðastofnunar, Róbert Jónsson framkvæmdastjóri AÞS, Steingerður Hreinsdóttir og Hrafn Sævaldsson sem ritaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Háskólafélag Suðurlands.
1.1. Staða verkefnisins.
Verkefnisstjóri verkefnisstjórnar um háskólanám á Suðurlandi, Sveinn Aðalsteinsson og formaður verkefnisstjórnar, Örn Þórðarson fóru yfir stöðu verkefnisins og kynntu framtíðaráform fyrir það.
1.2. Stofnun Háskólafélags Suðurlands ehf.
Lögð fram eftirfarandi tillaga frá verkefnisstjórn um háskólanám á Suðurlandi, um að Atvinnuþróunarfélagið stofni Háskólafélag Suðurlands ehf.
“Verkefnastjórn um Háskólafélag á Suðurlandi leggur til við stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands að stofnað verði einkahlutafélag (ehf.), Háskólafélag Suðurlands ehf. Stjórn Háskólafélagsins verði verkefnisstjórn og framkvæmdastjóri félagsins verði verkefnisstjóri. Háskólafélag Suðurlands ehf. hafi umboð til að gera samninga um húsnæði, samstarfssamninga og safna hlutafé. Tilgangur félagsins er í viðhengi. Í nóvember/desember verði haldinn hluthafafundur þar sem ný stjórn verði skipuð í samræmi við hlutafjáreign“.
Einnig lagt fram fylgiskjal/viðhengi með tillögu verkefnisstjórnar, þar sem fram kemur tilgangur félagins.
Stjórn AÞS samþykkti samhljóða að stofna einkahlutafélag með 500.000 kr. stofnhlutafé. Hlutafé og kostnaður við stofnun félagsins kemur úr verkefnasjóði AÞS.
1.3. Verkefnasjóður Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, ráðstöfun.
Lögð fram eftirfarandi tillaga frá formanni og framkvæmdastjóra AÞS um ráðstöfun fjár sem er í verkefnasjóði AÞS, nú u.þ.b. 77 mkr.
“Lagt er til að stjórn AÞS samþykki að boða til félagafundar eins fljótt og kostur er og að þar verði lögð fram tillaga um að allt fé sem er í verkefnasjóði félagsins, í lok árs 2007, verði lagt inn í væntanlegt Háskólafélag Suðurlands ehf. sem hlutafé. Þá er einnig lagt til að hlutafjárframlagið verði skipt upp á aðildarsveitarfélög AÞS á grundvelli eignaraðildar þeirra í AÞS og að hlutabréfin verði skráð á nafn hvers sveitarfélags.”
Tillagan var samþykkt samhljóða.
2. Fjárhagsstaða.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins.
3. Verkefni starfsmanna.
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að.
4. Áhrif 30% kvótaskerðingar á þorski í Vestmannaeyjum
Hrafn og Róbert fóru yfir greinargerðina “Mikilvægi þorsks á Vestmannaeyjar. Staðbundin efnahagsleg áhrif 30% kvótaskerðingar á Vestmannaeyjar” sem unnin var fyrir AÞS að beiðni Vestmannaeyjabæjar.
Einnig var rædd skýrslan: “Mótvægisaðgerðir fyrir Vestmannaeyjar í kjölfar 30% skerðingar á þorskkvóta við Ísland.” Skýrslan er samvinnuverkefni AÞS og Vestmannaeyjabæjar.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða af stjórn AÞS í framhaldi af umræðunni:
”Stjórn AÞS hefur áhyggjur af atvinnumálum í Vestmannaeyjum, vegna 30% niðurskurðar á þorskkvóta við Ísland og styður eindregið hugmyndir Vestmannaeyjabæjar um mótvægisaðgerðir og hvetur ríkisstjórn til að leggjast á árarnar með heimamönnum. Í ljósi íbúaþróunar í Vestmannaeyjum og einhæfs atvinnulífs lýsir AÞS enn fremur undrun sinni á því að ríkisstjórn skuli ekki hafa gripið til viðlíka aðgerða hvað Vestmannaeyjar varðar og Vestfirði þar sem aðstæður þessara tveggja svæða er afar svipaðar.
Greinargerð: Að beiðni Vestmannaeyjabæjar hefur AÞS látið vinna úttekt á efnahagslegum áhrifum 30% niðurskurðar á þorskkvóta fyrir Vestmannaeyjar. Niðurstaða þessa mats er að efnahagsleg áhrif fyrir Vestmannaeyjar séu ekki undir 10 milljörðum á þremur árum (3,6 milljarðar á ári) og er Vestmannaeyjabær sá staður á landinu öllu sem verður fyrir þyngsta högginu vegna þessarar aðgerðar. Áfall þetta kemur á erfiðum tíma enda hefur íbúum í Vestmannaeyjum fækkað um nálægt 20% á seinustu 15 árum og eru Vestmannaeyjar stærsta byggðarlag á Íslandi sem er að glíma við neikvæða íbúaþróun. Þá liggur og fyrir að Vestmannaeyjabær hefur í samvinnu við atvinnulífið í Vestmannaeyjum og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands lagt fram drög að mótvægisaðgerðum þar sem fram koma tillögur um aðkomu ríkisins til að milda efnahagsleg áhrif skerðingarinnar.”
Jafnframt var eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða:
“Stjórn AÞS felur framkvæmdastjóra að óska eftir því við fjármálaráðherra og ráðherra byggðamála að þeir gefi AÞS svör við því sem fyrst í hvaða farveg tillögur heimamanna fara nú og þá hvort og hvenær aðgerða um hverja tillögu fyrir sig er að vænta. Stjórn AÞS væntir þess að svör frá ráðherrunum liggi fyrir á næsta stjórnarfundi.”
5. Lagt fram bréf frá Guðmundi Elíassyni, dags. 15. ágúst 2007, sem óskar eftir að kaupa hlutafé Atvinnuþróunarfélagsins í Mókletti hf. í Vík.
Samþykkt er að selja hlutabréf félagsins í Mókletti hf. í Vík að nafnvirði kr. 1.191.833.- á genginu 1,4.
6. Þátttaka í nýjum verkefnum á vegum Evrópusambandsins.
Steingerður kynnti hugmyndir um þátttöku AÞS í nýjum verkefnum á vegum ESB. Stjórnin samþykkti að unnið verði að frekari þátttöku í Evrópuverkefnum og að ráðstafað verði nauðsynlegum tímum til þess.
Fleiri mál ekki tekin fyrir
Fundi slitið kl. 16.00
Snorri Finnlaugsson Þorgils Torfi Jónsson Birna Borg Sigurgeirsd.
Sigurður Ingi Jónsson Sigríður Þorgrímsdóttir Róbert Jónsson
Steingerður Hreinsdóttir Hrafn Sævaldsson
























