Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
14. maí. 2010 kl.09:14
292. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 12. maí 2010 kl. 10:00 á Austurvegi 56, Selfossi
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Guðbjörg Jónsdóttir, varamaður. Þorgils Torfi Jónsson og Elliði Vignisson boðuðu forföll. Einnig sat fundinn, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð og Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi KPMG, sem tók þátt í 1. dagskrárlið.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Ársreikningur 2009.
Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi, fór yfir ársreikning 2009.
Ársreikningurinn samþykktur samhljóða og undirritaður. Einar vék af fundi.
2. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri fór yfir fjárhagsstöðu félagsins og lagði fram samanburð á áætlun 2010 og rauntölum 30.04.2010. Rekstrarkostnaður fyrstu fjögurra mánaða er innan marka áætlunarinnar.
3. Verkefni starfsmanna
Lagt fram minnisblað um verkefni starfsmanna fyrir mars og apríl. Góð umræða varð um verkefnin.
4. Glæðir ehf.
Bréf frá Birgi Þórissyni, framkvæmdastjóra Glæðis ehf. lagt fram til kynningar. Einnig lögð fram samantekt Hrafns Sævaldssonar, starfsmanns AÞS vegna vinnu félagsins fyrir Glæði.
5. Breytingar á samþykktum AÞS
Stjórn samþykkir að hefja endurskoðun á samþykktum félagsins þ.e. þeim greinum sem varða inngöngu og úrsögn sveitarfélaga, ásamt grein sem kveður á um greiðslu sveitarfélaganna til AÞS.
6. Önnur mál
• Starfsmannamál.
Umræða varð um stöðugildi starfsmanns AÞS á Hellu. Samþykkt að taka málið formlega fyrir á næsta fundi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12.00
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Guðbjörg Jónsdóttir
Sædís Íva Elíasdóttir
























