Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
16. april. 2010 kl.09:06
291. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 3. mars 2010 kl. 15:00 í Glaðheimum, Selfossi
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson, Þorgils Torfi Jónsson og Birna Borg Sigurgeirsdóttir. Einnig sátu fundinn, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð og Steingerður Hreinsdóttir, starfsmaður AÞS.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
2. Verkefni starfsmanna
Lagt fram minnisblað um verkefni starfsmanna fyrir janúar og febrúar. Góð umræða varð um verkefnin.
3. Nýr Vaxtarsamningur Suðurlands
Nýr vaxtarsamningur Suðurlands var undirritaður í febrúar. Iðnaðarráðuneytið gerir samkomulag við Atvinnuþróunarfélagið um framkvæmd samningsins sem gildir frá 2010-2013. 35 mkr. eru til ráðstöfunar á fyrsta ári samningsins. Umræður sköpuðust um skipan í verkefnastjórn. Stjórn fagnar breyttum aðferðum við úthlutun fjármuna í vaxtarsamninga landsins sem leiðréttir hlut Suðurlands frá því sem var. Samningurinn samþykktur samhljóða.
4. Viðbótarframlag Vestmannaeyja frá 288. fundi
Á 288. fundi stjórnar AÞS var eftirfarnandi bókað: Lagt fram bréf frá Vestmannaeyjabæ dagsett 22. október sl. þar sem Vestmannaeyjabær óskar eftir því að grein 4 í samkomulagi sem gert var milli VM og AÞS við inngöngu VM í AÞS þann 6. apríl 2006 verði endurskoðað. Framkvæmdastjóra falið að vinna að málinu.
Framkvæmdastjóri lagði fram hugmyndir að breyttri reiknireglu vegna inngöngu sveitarfélaga í AÞS. Samdóma álit stjórnarmanna er að nauðsynlegt sé að endurskoða og samræma ákvæði í samþykktum AÞS sem kveða á um aðild, úrsögn og slit þ.e. greinar 7.1-7.5. Samþykkt var að hefja þá vinnu og að stjórn muni leggja fram tillögur að breytingum á samþykktum á næsta ársfundi félagsins. Málinu frestað til næsta fundar.
5. Önnur mál
Engin önnur mál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.30.
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Sædís Íva Elíasdóttir
























