haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

15. janúar. 2010 kl.10:21

 

290. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 13. janúar 2010 kl. 15:00 á Austurvegi 56, Selfossi 

 
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar. Elliði Vignisson tók þátt í fundinum í gegn um fjarfundabúnað. Einnig sat fundinn, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð.
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri fór yfir fjárhagsstöðu félagsins og lagði fram samanburð á áætlun 2009 og raunstöðu.
 
2. Verkefni starfsmanna
Lagt fram minnisblað um verkefni starfsmanna fyrir desember.
 
3. Bréf sveitarfélagsins Ölfus dagsett 14. desember 2009
Á fundi stjórnar AÞS í október 2008 var tekið fyrir erindi frá Sveitarfélaginu Ölfusi þar sem óskað var eftir að AÞS legði fram fjármagn og vinnu til að tryggja stöðugildi atvinnufulltrúa í Ölfusi, tímabundið eða a.m.k. í þrjú ár til að vinna að framgangi atvinnumála á svæðinu. Stjórn tók vel í erindið og samþykkti að fela framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélagsins að vinna að því að koma á fót átaksverkefni með aðkomu Iðnaðarráðuneytis og fleiri aðila sem tryggi stöðugildi starfsmanns sem hafi það hlutverk að vinna að verkefnum um nýtingu sunnlenskrar orku til atvinnuuppbyggingar á Suðurlandi. AÞS samþykkti 5 milljónir til verkefnisins en einnig hefur Byggðastofnun lagt 1.750 þúsund í verkefnið.
 
Í bréfi til AÞS dagsettu 14. desember 2009 óskar Sveitarfélagið Ölfus eftir því við AÞS að fjármagninu sem ætlað var til ráðningar á starfsmanni verði varið til þess að stands straum af kynningarkostnaði sem Sveitarfélagið Ölfus hefur lagt í kynningarátak á sveitarfélaginu og Suðurlandi í heild jafnt innanlands sem erlendi til að laða að atvinnufyrirtæki.
 
Stjórn AÞS er sammála um að þeir fjármunir sem samþykktir voru á sínum tíma frá félaginu verði nýttir til að greiða fyrir stöðugildi starfsmanns. Stjórn leggur á það árherslu að gengið verði sem allra fyrst frá þeirri ráðningu.
 
4. Sóknaráætlun 20/20
Framkvæmdastjóri lagði fram til kynningar tölvupóst sem barst félaginu frá Byggðastofnun 21. desember 2009 en þar segir. „Dagur B. Eggertsson, formaður stýrihóps um verkefnið 20/20 – Sóknaráætlun fyrir Ísland, hefur ritað Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra bréf og farið þess á leit að Byggðastofnun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og atvinnuþróunarfélög sem fá fjármagn frá Byggðastofnun, veiti landshlutasamtökum sveitarfélaga ráðgjöf og aðstoð vegna undirbúnings verkefnisins. Ekki er gert ráð fyrir að sérstaklega verði greitt fyrir þessa vinnu.“
 
5. Önnur mál
Engin önnur mál.
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.30.
 
 
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Elliði Vignisson
Sigríður Þorgrímsdóttir
Sædís Íva Elíasdóttir
 
 
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.