haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

21. desember. 2009 kl.11:43

 

289. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 2. desember 2009 kl. 14:00 í Víkurskóla

 
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson, Þorgils Torfi Jónsson og Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar. Elliði Vignisson tók þátt í fundinum í gegn um fjarfundabúnað. Birna Borg Sigurgeirsdóttir boðaði forföll. Einnig sat fundinn, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð.
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
 
2. Verkefni starfsmanna
Lagt fram minnisblað um verkefni starfsmanna fyrir nóvember. Unnið er að mörgum fjölbreyttum verkefnum.
 
3. Bréf Vottunarstofunnar Túns ehf. dagsett 19.11.2009
Í bréfinu kemur fram að á fundi stjórnar Vottunarstofunnar Túns ehf. 25. júní 2009 hafi verið samþykkt að félagið leysti til sín hlut þrotabús Baugs Group hf. í Túni að nafnvirði krónur 1.500.000.- samkvæmt heimild þar að lútandi í 7. gr. samþykkta Túns.
 
Stjórn Túns ákvað að selja hlutinn við fyrsta tækifæri og óskar í bréfinu eftir tilboðum frá hluthöfum í umræddan hlut, að hluta eða öllu leyti, sem jafngildir 14,486% hlutafjár í félaginu. Stjórnin áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum telji hún þau ekki ásættanleg. Berist fleiri en eitt tilboð um kaup á sama verði áskilur stjórnin sér rétt til að selja hluthöfum hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu.
 
Tilboð skulu berast félaginu í síðasta lagi 17. desember 2009. Hluti skal greiða í síðasta lagi 21. desember 2009. Hafi hluthafi ekki gert tilboð í hlutaféð m.v. fyrrgreind tímamörk er litið svo á að hann hyggist ekki nýta forkaupsrétt sinn og falli frá nýtingu hans við sölu ofangreindra hluta.
 
Núverandi eignarhlutur AÞS í Vottunarstofunni Tún ehf. er að nafnvirði 1.500.000.- krónur.
Stjórn samþykkir að falla frá forkaupsrétti sínum.
 
4. Beiðni Þjórsársveita
Eftirfarandi beiðni barst frá Þjórsársveitum: „Á fundi Þjórsársveitaverkefnisins 19. nóvember sl. var samþykkt að óska eftir því við AÞS að félagið visti heimasíðu verkefnisins og taki við síma þess.“
Stjórn samþykkir að AÞS taki að sér vistun heimasíðunnar og símsvörun og innheimti kostnað vegna verkefnisins hjá sveitarfélögunum fjórum sem um ræðir. Verkefnið verði endurskoðað í lok árs 2010.
 
5. Erindi frá ALM fjármálaráðgjöf hf. vegna Glæðis ehf.
Borist hefur erindi frá ALM fjármálaráðgjöf hf. vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar Glæðis ehf. þar sem óskað er eftir því hvort AÞS er reiðubúið að taka þátt í, með öðrum lánardrottnum Glæðis ehf., að fella niður hluta skuldar Glæðis ehf. við AÞS enda náist samstaða með öðrum helstu lánardrottnum félagsins.
 
Framkvæmdastjóra falið að mæta á fund með öðrum lánardrottnum og gæta hagsmuna félagsins í samræmi við umræður á fundinum.
 
6. Vaxtarsamningur 2010-2013
Framkvæmdastjóri greindi frá endurnýjunarferli Vaxtarsamnings Suðurlands og Vestmannaeyja.
Stjórn AÞS lýsir áhyggjum sínum varðandi hagsmunum Suðurlands við endurnýjun samningsins.
 
Formaður og framkvæmdastjóri fara ásamt fleirum á fund Iðnaðarráðherra vegna málsins.
 
7. Önnur mál
Engin önnur mál.
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15.30.
 
 
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Þorgils Torfi Jónsson
Sigríður Þorgrímsdóttir
Elliði Vignisson
Sædís Íva Elíasdóttir
 
 
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.