haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

21. desember. 2009 kl.11:37

 

288. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 4. nóvember 2009 kl. 12:00 á Hótel Rangá

 
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson, Þorgils Torfi Jónsson, Elliði Vignisson og Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar. Birna Borg Sigurgeirsdóttir boðaði forföll. Einnig sátu fundinn, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð, Steingerður Hreinsdóttir, Þorbjörn Jónsson og Hulda Eggertsdóttir, starfsmenn AÞS.
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
 
2. Fundaskipulag starfsársins 2009-2010
Lögð fram drög að fundaskipulagi 2009-2010. Gert er ráð fyrir að halda áfram því fyrirkomulagi að funda í aðildarsveitarfélögum AÞS og að fundirnir séu haldnir fyrsta miðvikudag mánaðar.
Fundarskipulagið samþykkt samhljóða.
 
Nr. fundar: Dagsetning: Staðsetning:
 
288 4.nóv Hótel Rangá
289 2.des Vík
290 6.jan Þorlákshöfn
291 3.feb Hveragerði
292 3.mar Hvolsvöllur
293 8.apr Skeiða- og Gnúpverjahreppur
294 6.maí Vestmannaeyjar
295 3.jún Hella
296 1.sep Selfoss - skrifstofa
 
3. Verkefni starfsmanna
Lagt fram minnisblað um verkefni starfsmanna fyrir september og október. Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem þeir hafa unnið að. Góð umræða um verkefnin og starfsemi AÞS.
 
4. Sóknaráætlun
Lögð fram til kynningar Tillaga nefndar á vegum ríkisstjórnarinnar um svæðaskiptingu Sóknaráætlunar 20/20 ásamt korti sem sýnir svæðin sem tillagan gengur út á. Talsverð umræða varð um málið.
 
5. Önnur mál
a) Bréf frá Vestmannaeyjabæ dagsett 22. október 2009
Lagt fram bréf frá Vestmannaeyjabæ dagsett 22. október sl. þar sem Vestmannaeyjabær óskar eftir því að grein 4 í samkomulagi sem gert var milli VM og AÞS við inngöngu VM í AÞS þann 6. apríl 2006 verði endurskoðað. Framkvæmdastjóra falið að vinna að málinu.
 
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13.30.
 
 
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Þorgils Torfi Jónsson
Elliði Vignisson
Sigríður Þorgrímsdóttir
Sædís Íva Elíasdóttir
Steingerður Hreinsdóttir
Þorbjörn Jónsson
Hulda Eggertsdóttir
 
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.