Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
04. nóvember. 2009 kl.10:22
Fundargerð
29. AÐALFUNDUR ATVINNUÞRÓUNARFÉLAGS SUÐURLANDS haldinn 15. október 2009 á Höfn í Hornafirði
1.Setning
Þorvaldur Guðmundsson , formaður, setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður tilnefndi þá Árna Þorvaldsson og Reyni Arnarson sem fundarstjóra og Hjalta Þór Vignisson sem fundarritara og var það samþykkt samhljóða.
3. Kosning í kjörbréfa og kjörnefnd
Lögð var fram svohljóðandi tillaga stjórnar að kjörbréfa- og kjörnefnd:
Aðalmenn
Gunnar Þorgeirsson - Grímsnes- og Grafningshreppi
Aldís Hafsteinsdóttir - Hveragerðisbæ
Gunnlaugur Grettisson - Vestmannaeyjabæ
Ingvar Pétur Guðbjörnsson - Rangárþingi ytra
Gylfi Þorkelsson - Sveitarfélaginu Árborg
Jóna Sigurbjartsdóttir - Skaftárhreppi
Reynir Arnarson - Sveitarfélaginu Hornafirði
Varamenn
Margeir Ingólfsson - Bláskógabyggð
Páll Stefánsson - Sveitarfélaginu Ölfusi
Páll Scheving - Vestmannaeyjabæ
Kristín Aradóttir - Rangárþingi eystra
Margrét Katrín Erlingsdóttir - Sveitarfélaginu Árborg
Þórhildur Jónsdóttir - Mýrdalshreppi
Var tillagan samþykkt samhljóða og tók nefndin þegar til starfa.
4. Skýrsla formanns
Formaður flutti skýrslu þar sem gerð er grein fyrir þjónustu og styrkjum félagsins, fundum stjórnar, húsnæðismálum, rekstri og framtíð félagsins.
5. Skýrsla framkvæmdastjóra og fjárhagsáætlun 2010
Framkvæmdastjóri flutti skýrslu og gerði grein fyrir starfsemi félagsins, starfsmannamálum, stefnu og hlutverki, styrkjum sem veittir hafa verið, samstarfssamningum við Vaxtarsamning Suðurlands og Vestmannaeyja og Eignarhaldsfélag Suðurlands hf. Þá gerði hún grein fyrir ráðgjöf og handleiðslu auk einstakra verkefna er lúta að atvinnuuppbyggingu, s.s um orkumál og Markaðsstofu Suðurlands. Þá kynnti framkvæmdastjóri nýja heimasíðu.
6. Lögmæti fundarins skv. niðurstöðu kjörbréfanefndar
Gunnar Þorgeirsson, formaður kjörbréfa- og kjörnefndar kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir kjörbréfum. Mættir eru 46 fulltrúar, 37 aðalfulltrúar og 9 varamenn. 8 voru fjarverandi. Fundurinn úrskurðast því lögmætur.
7. Reikningar félagsins fyrir árið 2008
Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi, kynnti reikninga félagsins fyrir árið 2008.
8. Umræður um skýrslur og reikninga
Ragnheiður Hergeirsdóttir, formaður fjárhagsnefndar, kvaddi sér hljóðs og lagði til að ársreikningur 2007 sem og fjárhagáætlun 2010 yrðu samþykkt.
Fundarstjóri bar reikninga upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
9. Tillaga um breytingu á samþykktum AÞS
i) Stjórn AÞS leggur til að samþykkt verði eftirfarandi bráðabirgðarákvæði við samþykktir felagsins:
Ákvæði til bráðabirgða samþykkt á aðalfundi 15. október 2009.
Þrátt fyrir ákvæði greinar 6.1 og ákvæði til bráðabirgða samþykkt á aukaaðalfundi 19. desember 2008 skulu Aðildarfélög AÞS að frátöldum Vestmannaeyjabæ ekki greiða árgjöld til AÞS á árinu 2010. Vestmannaeyjabær greiðir skv. fyrrgreindu bráðabirgðarákvæði 0,4% af útsvars og fasteignatekjum sínum. Jafnframt greiði Vestmannaeyjabær viðbótarframlag skv. grein 7.5.
Greinargerð:
Vegna erfiðra aðstæðna í rekstri sveitarfélaga leggur stjórn AÞS til að á árinu 2010 greiði aðildarsveitarfélögin ekki árgjöld til félagsins heldur verði gengið á eigið fé þess. Vestmannaeyjarbær á ekki hlutdeild í eigin fé félagsins og greiði því árgjald og viðbótarframlag til félagsins eins og áður hefur verið ákveðið.
Fundarstjóri gaf orðið laust.
Til máls tók: Ragnheiður Hergeirsdóttir.
Fundarstjóri bar tillögu upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
10. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2010.
Framkvæmdastjóri kynnti fjárhagsáætlun fyrir árið 2010.
Fundarstjóri gaf orðið laust en engin kvaddi sér hljóðs.
Fundarstjóri bar fjárhagsáætlun upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
11. Önnur mál löglega upp borin
Engin.
12. Kosning stjórnar
Lögð fram eftirfarandi tillaga kjörnefndar:
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands
Þorvaldur Guðmundsson, formaður stjórnar - Sveitarfélaginu Árborg
Birna Borg Sigurgeirsdóttir - Sveitarfélaginu Ölfusi
Elliði Vignisson - Vestmannaeyjabæ
Gunnar Örn Marteinsson - Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Þorgils Torfi Jónsson - Rangárþingi ytra
Varastjórn:
Róbert Hlöðversson - Hveragerðisbæ
Guðbjörg Jóndóttir - Flóahreppi
Páley Borgþórsdóttir - Vestmannaeyjabæ
Sveinn Pálsson - Mýrdalshreppi
Þórunn Jóna Hauksdóttir - Sveitarfélaginu Árborg
Samþykkt samhljóða.
13. Kosning skoðunarmanna
Kosning skoðunarmanna ársreikninga og varamanna þeirra
Skoðunarmenn
Aðalmenn
Elín Einarsdóttir Mýrdalshreppi
Margrét Sigurðardóttir Flóahreppi
Varamenn
Herdís Þórðardóttir Hveragerðisbæ
Jón Valgeirsson Grímsnes- og Grafningshreppi
Þorvaldur Guðmundsson, formaður stjórnar, þakkaði traustið og sleit fundi kl. 12.00
























