haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

23. september. 2009 kl.13:23

 

287. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn þriðjudaginn 22. september 2009 kl. 16:00 á Austurvegi 56, Selfossi

 
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson og Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Elliði Vignisson tók þátt í gegn um síma en Þorgils Torfi Jónsson og Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar boðuðu forföll. Einnig sat fundinn, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð.
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
1. Bréf fjárhagsnefndar
Lagt var fram bréf frá Fjárhagsnefnd SASS dagsett 3. september 2009. Í þessu bréfi kom fram eftirfarandi ályktun:
 
„Á fundi fjárhagsnefndar SASS sem haldinn var 31. ágúst sl., var fjallað um væntanleg störf nefndarinnar í tengslum við fjárhagsáætlanir stofnana og væntanlegt ársþing í október n.k. Eftirfarandi samþykkt var gerð:
„Nefndin var sammála um að nauðsynlegt sé að skýra hlutverk nefndarinnar í samþykktum SASS og jafnframt að setja þyrfti inn samsvarandi ákvæði í samþykktir annarra stofnana um sameiginlega fjárhagsnefnd. Nefndin telur slíkt forsendu þess að störf hennar þjóni einhverjum tilgangi sérstaklega með tilliti til efnahagsástandsins í dag og rekstrarumhverfis sveitarfélaganna.“
Samþykkt var að senda stjórnum stofnananna bréf þess efnis.“
 
Stjórn AÞS sér ekki ástæðu til að breyta samþykktum félagsins og er áfram reiðubúin að axla þá ábyrgð sem felst í stjórnun þess.
 
Í bréfi fjárhagsnefndar var jafnframt eftirfarandi samþykkt gerð:
 
„Nefndin telur eðlilegt að framlög sveitarfélaganna til AÞS verði á grundvelli höfðatölureglu eins og hjá öðrum stofnunum, að Sorpstöð Suðurlands undanskilinni sem fær sínar tekjur eingöngu af þjónustugjöldum. Til þess þarf þó að breyta samþykktum AÞS. Nefndin leggur til við stjórn AÞS að hún skoði málið fyrir næsta aðalfund félagsins.“
 
Stjórn AÞS telur eðlilegt að fjárhagslegt umhverfi AÞS sé í stöðugri skoðun en telur ekki tímabært að leggja tillögu þessa efnis fyrir aðalfund 2009.
 
2. Fjárhagsáætlun 2010
Lögð voru fram drög að fjárhagsáætlun 2010. Farið yfir einstaka liði áætlunarinnar.
Stjórn samþykkir framlögð drög að fjárhagsáætlun.
 
Ljóst er að fjárhagsleg staða sveitarfélaganna er erfið um þessar mundir og stjórn samþykkir að leggja eftirfarandi tillögu fyrir aðalfund félagsins.
 
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands (AÞS) leggur til að samþykkt verði eftirfarandi bráðabirgðaákvæði við samþykktir félagsins:
 
Ákvæði til bráðabirgða samþykkt á aðalfundi 15. október 2009
Þrátt fyrir ákvæði greinar 6.1 og ákvæði til bráðabirgða samþykkt á auka aðalfundi 19. desember 2008 skulu Aðildarfélög AÞS að frátöldum Vestmannaeyjabæ ekki greiða árgjöld til AÞS á árinu 2010. Vestmannaeyjabær greiðir skv. fyrrgreindu bráðabirgðaákvæði 0,4% af útsvars- og fasteignatekjum sínum. Jafnframt greiði Vestmannaeyjabær viðbótarframlag skv. grein 7.5.
 
Greinargerð:
Vegna erfiðra aðstæðna í rekstri sveitarfélaga leggur stjórn AÞS til að á árinu 2010 greiði aðildarsveitarfélögin ekki árgjald til félagsins heldur verði gengið á eigið fé þess.
Vestmannaeyjabær á ekki hlutdeild í eigin fé félagsins og greiði því árgjald og viðbótarframlag til félagsins eins og áður hefur verið ákveðið.
 
3. Önnur mál
Drög að dagskrá aðalfundar 2009 lögð fram til kynningar. Stjórn samþykkir framlögð drög.
 
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.30.
 
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Elliði Vignisson
Sædís Íva Elíasdóttir
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.