haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

23. september. 2009 kl.13:17

286. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 2. september 2009 kl. 14:00 á Hótel Flúðum

 
 
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Þorgils Torfi Jónsson og Elliði Vignisson. Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar boðaði forföll. Einnig sátu fundinn, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð og Hulda Eggertsdóttir, starfsmaður AÞS.
 
Fyrir fundinn hitti stjórn sveitarstjórn Hrunamannahrepps og snæddi með þeim hádegisverð. Að því loknu var farið í heimsókn í Flúðasveppi þar sem Georg Ottósson, eigandi Flúðasveppa og Jörfa og formaður Sölufélags garðyrkjumanna fór yfir stöðu sinna fyrirtækja og garðyrkjunnar í stuttu máli.
 
Einnig var farið í Límtrésverksmiðju BM Vallár á Flúðum þar sem Sigmundur Brynjólfsson, framleiðslustjóri sýndi verksmiðjuna og sagði frá verkefnastöðu o.fl.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
 
1. Starfsmannamál
Hulda Eggertsdóttir hefur verið ráðin til starfa og mun hún hafa starfsaðstöðu á Hellu. Stjórn staðfestir ráðningu Huldu og býður hana velkomna til starfa.
 
2. Fjármál félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins og lagði fram samanburð á fjárhagsáætlun 2009 ásamt raunstöðu 31.08.2009. Fjárhagsáætlun hefur staðist fyrstu 8 mánuði ársins. Fjárhagsáætlun 2010 verður lögð fyrir á næsta stjórnarfundi.
 
3. Verkefni starfsmanna
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað um verkefni starfsmanna og gerði grein fyrir helstu verkefnum. Umræða fór fram um þau.
 
 
4. Ársfundur AÞS
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað vegna fundar sem haldinn var með framkvæmdastjórum og formönnum byggðasamlaganna á Austurvegi 56, ásamt drögum að dagskrá ársþingsins sem halda á, á Höfn í Hornafirði dagana 15. og 16. október. Stjórn gerir ekki athugasemd við framlögð dagskrárdrög.
 
5. Önnur mál
a) Samþykkt að næsti stjórnarfundur verði haldinn 22. september kl. 16.00 á Selfossi.
 
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 16.00
 
 
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Elliði Vignisson
Sædís Íva Elíasdóttir
Hulda Eggertsdóttir
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.