270. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn föstudaginn 12. október 2007 kl. 13:30, á Hvolsvelli
Á fundinn voru mætt: Snorri Finnlaugsson formaður, Sigurður Ingi Jóhannsson, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Elliði Vignisson. Fundinn sátu einnig Sigríður Þorgrímsdóttir fyrir hönd Byggðastofnunar, Róbert Jónsson framkvæmdastjóri AÞS, Steingerður Hreinsdóttir, Hrafn Sævaldsson og Sædís Íva Elíasdóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Fjárhagsstaða.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins.
2. Verkefni starfsmanna.
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að.
3. Lagt fram erindi frá Kristjáni Kristjánssyni, dags. 2. október 2007, þar sem óskað er eftir aðkomu AÞS að útgáfu kynningarblaðs um Suðurland og Vestmannaeyjar.
Stjórn samþykkir að kaupa sem nemur tveimur síðum í blaðinu fyrir 300.000 kr. og að síðurnar verði nýttar til kynningar á Atvinnuþróunarfélaginu. Kostnaði er vísað til endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar.
4. Lögð fram tillaga um styrkveitingar félagsins, haust 2007
Til ráðstöfunar voru 5.085.000 kr. Alls bárust 33 umsóknir til félagsins. Samþykkt var að hækka framlagið um 55.000 kr. og að veita alls 5.140.000 kr. til styrkja í þetta sinn.
Stjórnin samþykkti að eftirtaldir aðilar fengju styrki frá félaginu að þessu sinni:
Umsækjandi:Verkefni:Styrkur:
Köfun og öryggi ehf.Rafketill/rafsparnaður100.000 kr.
Steingrímur og EyrúnKálfholt hestaferðir400.000 kr.
Guðmundur HaukssonÁs hestaferðir400.000 kr.
Margrét HjálmarsdóttirBókhald í úthýsingu200.000 kr.
Jóhann FrímannssonFjósakona fer út í heim200.000 kr.
Sjóstangaveiði við VMMarkaðssetning400.000 kr.
Jóhanna Ósk PálsdóttirEin sit ég og sauma200.000 kr.
Töfragarðurinn ehf.Markaðssetning400.000 kr.
Ferðaþjónustan Suðurströnd ehf.Markaðssetning400.000 kr.
BHtækni ehf.TYM á Íslandi175.000 kr.
Gistiheimilið HvíldMarkaðssetning 185.000 kr.
Vefsins hetja ehf.Sölutækifæri á internetinu130.000 kr.
Helgi SveinbjörnssonDýragarðurinn Slakki400.000 kr.
2B Company ehf.Íslenska bjórfélagið ehf.400.000 kr.
Björgvin BjörgvinssonIðnhönnun í VM400.000 kr.
Knútur Rafn ÁrnasonMarkaðssetning Friðheima400.000 kr.
Sigurbjörg ElimarsdóttirMarkaðssetning150.000 kr.
Ragnar RagnarssonStafræn smáprentun200.000 kr.
Samtals5.140.000kr.
Stjórnin þakkar öllum þeim sem sendu umsóknir til félagsins, fyrir áhugann.
5. Endurskoðun á starfsemi sunnlenskra sveitarfélaga 2007.
Skýrsla starfshóps og tillögur til stjórnar AÞS.
Stjórn samþykkir að leggja eftirfarandi tillögur fram á aðalfundi AÞS:
A. Í samræmi við skýrslu og tillögur stýrihóps samþykkir stjórn AÞS að leggja til við aðalfund AÞS að SASS og AÞS verði sameinuð í eitt félag með einum framkvæmdastjóra og verkefni sem AÞS hefur haft með höndum verði sinnt innan vébanda SASS.
B. Verði tillaga A samþykkt af aðalfundi AÞS verði stjórn AÞS falið að boða til auka aðalfundar þar sem lögð verði fram tillaga um samruna við SASS, þar sem SASS yfirtaki réttindi, skyldur og starfsemi AÞS.
6. Fjárhagsáætlun 2008.
Framkvæmdastjóri lagði fram rekstraráætlun 2008 (ásamt áætlun 2007 og raunútkomu 2006).
Stjórn samþykkir að leggja rekstraráætlunina fyrir aðalfund AÞS.
7. Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Suðurlands.
Lögð fram drög að dagskrá Aðalfundar AÞS.
Stjórn samþykkir framlagða dagskrá.
8. Önnur mál
1) Lagt fram bréf frá Óla Rúnari Ástþórssyni varðandi málefni 1997 ehf. Í bréfinu er óskað eftir að Atvinnuþróunarfélag Suðurlands samþykki skilmálabreytingu á veðskuldabréf Atvinnuþróunarfélagsins á hendur 1997 ehf.
Stjórn samþykkir að gerð verði umbeðin skilmálabreyting.
2) Elliði Vignisson kynnti afstöðu starfshóps um eflingu háskóla- og rannsóknastarfsemi í Vestmannaeyjum. Eftirfarandi yfirlýsing hefur verið send frá starfshópnum til Vestmannaeyjabæjar:
“Starfshópur um eflingu háskóla- og rannsóknastarfsemi í Vestmannaeyjum lýsir yfir fullum samstarfsvilja gagnvart stofnun Háskólafélags Suðurlands en án allra fjárhagslegra skuldbindinga. Starfshópurinn mun áfram vinna að eflingu
háskólastarfsemi í Vestmannaeyjum innan Setursins í samræmi við erindisbréf”.
Af þessum ástæðum hafa fulltrúar Vestmannaeyjabæjar ákveðið að stjórnarmaður þeirra og varamaður hans í verkefnastjórn um háskólanám á Suðurlandi (Háskólafélag Suðurlands) víki úr verkefnastjórninni.
Stjórn samþykkir að fresta til næsta fundar að skipa fulltrúa í þeirra stað.
Fleiri mál ekki tekin fyrir
Fundi slitið kl. 16.30
Snorri Finnlaugsson Þorgils Torfi Jónsson Birna Borg Sigurgeirsd.
Sigurður Ingi Jóhannsson Elliði Vignisson Sigríður Þorgrímsdóttir
Róbert Jónsson Steingerður Hreinsdóttir Hrafn Sævaldsson