haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

. . kl.:

285. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 3. júní 2009 kl. 15:00 á Austurvegi 56, Selfossi

 
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Þorgils Torfi Jónsson. Elliði Vignisson tók þátt í fundinum í gegn um fjarfundabúnað. Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar boðaði forföll. Einnig sat fundinn, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð og Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi sem tók þátt í lið eitt á dagskránni en vék að því loknu af fundi.
 
Fyrir fundinn hitti stjórn fulltrúa bæjarstjórnar Árborgar og fór í skoðunarferð um sveitarfélagið.
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:

1. Ársreikningur 2008
Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi fór yfir ársreikning 2008. Reikningurinn samþykktur samhljóða.
 
2. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
 
3. Verkefni starfsmanna
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað um verkefni starfsmanna og gerði grein fyrir helstu verkefnum. Umræða fór fram um þau. Stjórnin þakkar fyrir framlagt minnisblað.
 
4. Húsnæðismál félagsins
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað vegna húsnæðismála. Stjórn samþykkir að ekki verði gerðar frekari breytingar á húsnæðisfyrirkomulagi félagsins að svo komnu máli.
 
5. Önnur mál
a) Starfsmannamál
Í ljósi þeirra stöðu sem uppi er í atvinnumálum á Suðurlandi og mikilla verkefna Atvinnuþróunarfélagsins telur stjórn nauðsynlegt að ráðinn verði 5. verkefnastjórinn til Atvinnuþróunarfélagsins.
Stjórn samþykkti samhljóða að ráðinn verði 5. verkefnastjóri Atvinnuþróunarfélagsins, til eins árs. Verkefnastjórinn verði staðsettur á Hellu og leitað verði samninga við Verkalýðshúsið Hellu um húsnæði fyrir hann á grundvelli tilboðs frá þeim. Einnig samþykkt að sækja um framlag frá Byggðastofnun sbr. greiðslur fyrir önnur stöðugildi hjá Atvinnuþróunarfélaginu. Framkvæmdastjóra falið að auglýsa stöðuna og sækja um til Byggðastofnunar.
 
 
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 17.30
 
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
ElliðiVignisson
Sædís Íva Elíasdóttir
 
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.