Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
02. júlí. 2009 kl.10:40
284. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 14:00 á Hótel Kirkjubæjarklaustri
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson og Þorgils Torfi Jónsson. Elliði Vignisson og Birna Borg Sigurgeirsdóttir boðuðu forföll. Einnig sátu fundinn, Sigríður Þorgrímsdóttir, fulltrúi Byggðastofnunar, Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð og Þorbjörn Jónsson, starfsmaður AÞS.
Fyrir fundinn hitti stjórn fulltrúa sveitarstjórnar Skaftárhrepps og skoðaði fyrirtæki á svæðinu.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
2. Verkefni starfsmanna.
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað um verkefni starfsmanna og gerði grein fyrir helstu verkefnum. Umræða fór fram um þau. Stjórnin þakkar fyrir framlagt minnisblað.
3. Styrkir félagsins
Starfsmenn AÞS lögðu fram eftirfarandi tillögu til styrkveitinga sem var samþykkt.
Upphæð Verkefni
100.000 kr. Steinunn Hrafnkelsdóttir, Náttúruval-Sápugerð, - vöruþróun og markaðssetning
200.000 kr. Dagrún Jónsdóttir, Vélhjólapartur, hönnun mótorhjólasafns og samkomustaðar
200.000 kr. Ragnheiður Jónasdóttir, Heklusýning, hönnun og uppbygging
200.000 kr. Hekla Hermundsdóttir, Framleiðsla á kaplamjólk - vöruþróun og markaðsathugun
200.000 kr. Kirkjubæjarstofa, Jarðeldasýnin á Kirkjubæjarklaustri - undirbúningur og hönnun
200.000 kr. Ferðamálafélag Skaftárhrepps, Friðsæld og frumkraftar, markaðs og vöruþróun í ferðaþjónustu Skaftárhreppi
300.000 kr. Sesseljuhús, Orkugarður Sólheima, fræðslu og skemmtigarður
200.000 kr. Eld-Járn ehf., Járningaskólinn á Stokkseyrarseli, vöruþróun og markaðssetning
200.000 kr. Húfa ehf., Hönnun húsnæðis, vöruþróun markaðs og kynningarmál
300.000 kr. Anna Árnadóttir, Dansk-Íslenska sögusetrið á Eyrarbakka
200.000 kr. Sigva Margmiðlun, Margmiðlunarfrásagnir vöruþróun
100.000 kr. Snyrtistofan Ylur ehf., Heimasíðugerð og markaðssetning
100.000 kr. Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, Meðgöngunudd - markaðssetning og kynningarefni
100.000 kr. Menningarmiðlun ehf., Uppbygging vefsvæða og tengslaneta
300.000 kr. Jón Tryggvi Guðmundsson, Framleiðsla á Bíógasi - hönnun og teikningar á vélbúnaði
300.000 kr. Glófi ehf. Markaðsmál fyrir verslun með ullarvöru og minjagripi á Hvolsvelli
200.000 kr. Gaulverjar ehf., Gistihús/svefnpokagisting, markaðssetning á nýju gistiheimili
200.000 kr. Steinunn Bjarnadóttir, Efling ferðaþjónustu í Reykholti - skipulag og hönnun
200.000 kr. Sólstaðir ehf., Markaðssetning, Laugavatn Adventure
300.000 kr. Mýrdalssandur ehf., Þróun vinnslulínu og markaðssetning
200.000 kr. Kjartan Ágústsson, Rabarbía- vöruþróun, markaðssetning og kynningarefni
100.000 kr. 24seven ehf., Visit WestmannIsland.com - markaðssetning og kynning
300.000 kr. Einar Matthías Þórarinsson, Framleiðsla á spæni - hönnun og smíði vélar
100.000 kr. Halldór Jónsson, Bátaferðaþjónustan við Suðurströndina - auglýsingar og heimasíða fyrir bátahöfn
100.000 kr. Páll Reynisson, Veiðisafnið, markaðssetning
100.000 kr. Vélsmiðja Ingvars Guðna, Kynning á nýjum íslenskum áherslum í kreppu
5.000.000 kr.
4. Húsnæðismál félagsins
Á síðasta fundi stjórnar var samþykkt að fresta umfjöllun um húsnæðismál. Framkvæmdastjóri lagði fram uppfært minnisblað vegna húsnæðismála. Stjórn samþykkir að fela formanni og framkvæmdastjóra að vinna málið áfram og stefnt að því að ljúka því á næsta fundi.
5. Bréf Rangárþings ytra
Lagt fram bréf frá Rangárþingi ytra dagsett 5. maí 2009.
6. Bréf Rangárþings eystra
Lagt fram bréf frá Rangárþingi eystra dagsett 14. apríl 2009.
7. Rekstraráætlun uppfærð
Framkvæmdastjóri lagði fram endurskoðaða rekstraráætlun þar sem tekið hefur verið tillit til tillagna fjárhagsnefndar. Rekstraráætlunin samþykkt samhljóða.
8. Önnur mál
Ákveðið að næsti fundur verði haldinn á Selfossi.
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 17.00
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Þorgils Torfi Jónsson
Sædís Íva Elíasdóttir
Sigríður Þorgrímsdóttir
Þorbjörn Jónsson
























