haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

01. april. 2009 kl.10:39

283. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 1. apríl 2009 kl. 14:00, Aratungu

 
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Gunnar Örn Marteinsson og Sveinn Pálsson varamaður. Elliði Vignisson, Þorgils Torfi Jónsson og Birna Borg Sigurgeirsdóttir boðuðu forföll. Einnig sat fundinn Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð.
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
 
2. Verkefni starfsmanna.
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað um verkefni starfsmanna og gerði grein fyrir helstu verkefnum. Umræða fór fram um þau. Stjórnin þakkar fyrir framlagt minnisblað.
 
3. Húsnæðismál félagsins
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað vegna húsnæðismála. Stjórn samþykkir að fresta málinu til næsta fundar.
 
4. Umsóknir um ráðgjafastarf
Gengið hefur verið frá ráðningu Þorbjörns Jónsson í starf ráðgjafa/verkefnastjóra frá 1. apríl. Alls sótti 31 aðili um starfið. Stjórn staðfestir ráðningu Þorbjörns og bíður hann velkominn til starfa.
 
5. Önnur mál
Formaður gerði grein fyrir tveimur aðalfundum sem hann sat á fyrir hönd AÞS. Annars vegar er um að ræða Tún ehf. og hins vegar Gjöll ehf.
 
 
 
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 16.00
 
Þorvaldur Guðmundsson
Gunnar Örn Marteinsson
Sædís Íva Elíasdóttir
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.