Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
04. mars. 2009 kl.10:38
282. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 4. mars 2009 kl. 14:00, að Laugarlandi í Holtum
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson og Sigríður Þorgrímsdóttir sem er fulltrúi Byggðastofnunar. Elliði Vignisson boðaði forföll. Einnig sat fundinn Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS sem skrifaði fundargerð.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
2. Verkefni starfsmanna.
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað um verkefni starfsmanna og gerði grein fyrir helstu verkefnum. Umræða fór fram um verkefnin.
3. Húsnæðismál félagsins
Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað vegna húsnæðismála. Stjórn samþykkti að kannaðir verði möguleikar á húsnæði fyrir starfsemi AÞS með auglýsingu í staðarblöðum.
4. Umsóknir um ráðgjafastarf
Starf ráðgjafa/verkefnastjóra var auglýst um miðjan febrúar. Umsóknarfrestur er til 10. mars n.k. Nú þegar hafa 23 umsóknir borist.
5. Fundur með fjárhagsnefnd
Framkvæmdastjóri sagði frá fundi sem hann sat með fjárhagsnefnd SASS .
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 14.20
Þorvaldur Guðmundsson
Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Gunnar Örn Marteinsson
Sigríður Þorgrímsdóttir
Sædís Íva Elíasdóttir
























