haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fundargerðir

04. febrúar. 2009 kl.10:34

281. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn miðvikudaginn 4. febrúar 2009 kl. 12:00, á Selfossi

 
Á fundinn voru mætt: Þorvaldur Guðmundsson, formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson og Sigríður Þorgrímsdóttir sem er fulltrúi Byggðastofnunar. Elliði Vignisson var í fjarfundasambandi frá Vestmannaeyjum. Einnig sátu fundinn Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri AÞS og starfsmenn AÞS, Steingerður Hreinsdóttir og Hrafn Sævaldsson sem skrifaði fundargerð.
 
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
 
1. Fjárhagsstaða félagsins
Framkvæmdastjóri AÞS fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
 
2. Verkefni starfsmanna.
Starfsmenn gerðu grein fyrir þeim verkefnum sem unnið er að og svöruðu spurningum stjórnarmanna.

Tillaga kom fram frá Gunnari um að framkvæmdastjóri félagsins myndi senda út til sveitarstjórnarmanna, með fundargögnum, hvaða verkefnum félagið vinnur að hverju sinni. Vel var tekið í þessa tillögu af stjórn. Framkvæmdastjóri mun upplýsa sveitarstjórnamenn um þau verkefni, sem félagið vinnur að hverju sinni, þó þannig að fyllsta trúnaði sé gætt gagnvart viðskiptavinum félagsins.

Framkvæmdastjóri kynnti ráðstefnu sem fyrirhuguð er 20. febrúar 2009 í Borgarnesi. Ráðstefnan ber heitið íslensk byggðamál á krossgötum. AÞS mun eiga fulltrúa á fundinum.
 
3. Ráðning ráðgjafa
Framkvæmdastjóri kynnti mögulega ráðningu á nýjum ráðgjafa til félagsins. Stjórn samþykkti að auglýsa eftir starfsmanni við fyrsta tækifæri. Framkvæmdastjóra félagsins er falið að ganga frá ráðningu nýs starfsmanns frá og með 1. apríl 2009.
 
4. Fjárhagsáætlun – fjárhagsnefnd
Fundur er fyrirhugaður 6. febrúar 2009 með fjárhagsnefnd SASS. Framkvæmdastjóri félagsins mun mæta á fund nefndarinnar fyrir hönd félagsins.
 
5. Styrkir félagsins
Stjórn AÞS samþykkir að auglýsa styrki til úthlutunar að upphæð allt að 5,0 milljónir króna vorið 2009. Framkvæmdastjóra AÞS er falið að undirbúa auglýsingu á styrkjum til úthlutunar á næstu dögum. Sama fyrirkomulag verður á umsóknarferli og var við síðustu úthlutun.
 
6. Erindi frá Rangárþingi ytra
Erindi Rangárþings ytra um samstarf um að halda ferðamálaráðstefnu að Leirubakka 22. maí 2009.
Stjórn AÞS getur því miður ekki orðið við beiðni um fjárhagslega aðstoð en lýsir yfir áhuga á að styðja aðstandendur verkefnisins við undirbúning ráðstefnunnar, með vinnuframlagi.
 
7. Fundaskipulag 2009
Stjórn samþykkir eftirfarandi:
Fundir skulu að jafnaði haldnir fyrsta miðvikudag mánaðar. Engir fundir eru haldnir í júlí og ágúst vegna sumarleyfa.
• 282. fundur haldinn 4. mars 2009 í Ásahreppur
• 283. fundur haldinn 1. apríl 2009 í Bláskógabyggð
• 284. fundur haldinn 6. maí 2009 á Kirkjubæjarklaustri
• 285. fundur haldinn 3. júní 2009 í Hrunamannahreppur
• 286. fundur haldinn 2. september 2009 á Selfossi
• 287. fundur haldinn 7.október 2009 í Þorlákshöfn
• 288. fundur haldinn 4.nóvember 2009 í Vík
• 289. fundur haldinn 2. desember 2009 í Hveragerði

Fundirnir eru haldnir víðsvegar á starfsvæði félagsins, miðað er við að funda með sveitar-/bæjarstjórnum viðkomandi sveitar-/bæjarfélags í tengslum við fundina ásamt því að heimsækja fyrirtæki á svæðunum.
 
8. Önnur mál
a. Fulltrúi Atvinnuþróunarfélagsins í stjórn og framkvæmdaráði VSSV. Stjórnin samþykkir að Þorgils Torfi Jónsson taki sæti í stjórn og framkvæmdaráði VSSV, fyrir hönd Atvinnuþróunarfélags Suðurlands þar sem Snorri Finnlaugsson er gengin úr stjórn AÞS.
b. Stjórn felur framkvæmdastjóra AÞS að fara í þarfagreiningu á nýju húsnæði fyrir starfsemi félagsins.
Mun hún skila minnisblaði á næsta fundi stjórnar AÞS vegna þeirrar vinnu, þar mun koma fram greining á kostnaði, auk kosta og galla við flutning á starfseminni og hvaða möguleikar eru í boði. Auk þess verður dreifing starfsmanna og viðvera skoðuð, um leið og hver reynsla annarra atvinnuþróunarfélaga er af þess háttar útfærslu. Málið verður tekið fyrir á næsta fundi AÞS.
 
Fleiri mál ekki tekin fyrir og fundi slitið kl. 14.20
 
Fundargerð upplesin og undirrituð í lok fundar.

Þorvaldur Guðmundsson
Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Gunnar Örn Marteinsson
Elliði Vignisson
Sigríður Þorgrímsdóttir
Sædís Íva Elíasdóttir
Steingerður Hreinsdóttir
Hrafn Sævaldsson
 
 


Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.