Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fundargerðir
17. janúar. 2008 kl.10:24
271. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands haldinn fimmtudaginn 17. janúar 2008 kl. 12:00, í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn.
Á fundinn voru mætt:
Snorri Finnlaugsson formaður, Þorgils Torfi Jónsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson og Elliði Vignisson.
Formaður stjórnar setti fundinn og gekk til dagskrár:
1. Uppsögn og samningur um starfslok við framkvæmdastjóra AÞS,
dags. 30.11.2007 – staðfesting.
Formaður lagði fram uppsögn og samning við Róbert Jónsson dags. 30.11.2007
Samningurinn staðfestur samhljóða.
Stjórn AÞS þakkar Róbert Jónssyni fyrir góð störf fyrir félagið og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.
2. Erindi starfsmanna AÞS, dags. 11. jan. 2008.
Formaður lagði fram erindi frá starfsmönnum AÞS þeim, Hrafni Sævaldssyni, Steingerði Hreinsdóttur og Sædísi Ívu Elíasdóttur þar sem þau óska eftir því við stjórn AÞS að gerður verði við þau starfslokasamningur sem taki gildi þegar þær breytingar verða sem fyrirhugaðar eru á starfsemi félagsins þann 25. janúar n.k.
Afgreiðsla stjórnar:
Á aðalfundi AÞS þann 2. nóvember sl. var samþykkt samhljóða að AÞS og SASS yrðu sameinuð í eitt félag og stjórn AÞS falið að boða til auka aðalfundar þar sem lögð yrði fram tillaga um samruna við SASS þar sem SASS yfirtæki réttindi, skyldur og starfsemi AÞS.
Stjórn AÞS lítur svo á að með samþykkt þessari sé átt við öll réttindi og allar skyldur AÞS svo sem samninga við starfsfólk sem færist því yfir til SASS.
Stjórn AÞS getur því ekki orðið við erindinu þar sem það myndi brjóta í bága við samþykkt aðalfundar sem í raun hefur ákveðið að SASS yfirtaki alla starfsemi AÞS og allar skyldur þess.
Stjórnin þakkar starfsmönnum fyrir góð störf í þágu félagsins og vonast til að góð sátt geti orðið um áframhaldandi störf þeirra í þágu atvinnuþróunar á Suðurlandi.
Jafnframt vill stjórn AÞS minna á samþykkt aðalfundar SASS frá 2. nóv. sl. þar sem segir um tillögu endurskoðunarnefndar um sameiningu AÞS og SASS.
“Lögð er áhersla á að tillagan leiði ekki til þess að stuðningur og ráðgjöf við atvinnulífið á Suðurlandi rýrni, þeim verkefnum sem ráðgjafar AÞS hafa nú með höndum verði áfram sinnt. Safnast hefur upp mikilvæg þekking og reynsla hjá starfsfólki sem mikilvægt er að glatist ekki. Undirbúningur og útfærsla fyrirhugaðra breytinga verði vandlega unnin og kynnt tímanlega fyrir aukaaðalfund.”
Stjórn AÞS vill minna stjórn SASS á mikilvægi þessarar aðalfundarsamþykktar þegar framtíðarskipulag atvinnuþróunarmála á vegum SASS verður ákveðið.
3. Aukaaðalfundur AÞS 25. janúar n.k.
Lögð voru fram drög að dagskrá og tillögu um sameiningu við SASS.
4. Erindi Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvar Vestmannaeyja, dags. 14. janúar 2008.
Lagt var fram erindi frá bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum f.h. Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar í Vestmanneyjum þar sem óskað er eftir vinnuframlagi eins atvinnuráðgjafa vegna vinnu við stofnun fyrirtækis heimamanna og útboð vegna samgangna til Vestmannaeyja.
Tillaga að afgreiðslu:
Stjórn AÞS felst á erindið og samþykkir að leggja verkefninu til vinnu atvinnuráðgjafa í allt að 300 tíma enda felst í því mikil tækifæri fyrir sunnlenskt atvinnulíf. Þá vill stjórn AÞS líta svo á að hlutverk atvinnuráðgjafans sé ekki síst að huga að afleiddum störfum og þróunnaravinnu. Samþykki þetta er háð því að verkbeiðendur skili inn tímaskýrslum og verkefna dagbók fyrir starfsmanninn vikulega á meðan á vinnuferlinu stendur. AÞS fagnar enn fremur þessu framtaki heimamanna enda ljóst að í því kunna að felast mikil atvinnutækifæri víða á Suðurlandi.
Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum. Birna Borg Sigurgeirsdóttir sat hjá.
Fleiri mál ekki tekin fyrir.
Fundi slitið kl. 15.15
Snorri Finnlaugsson
Þorgils Torfi Jónsson
Birna Borg Sigurgeirsd.
Gunnar Örn Marteinsson
Elliði Vignisson
























