Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Styrkir Fiskræktarsjóðs. Umsóknarfrestur til 1. mars
22. janúar 2012
Fiskræktarsjóður starfar á grundvelli laga nr. 72/2008. Meginhlutverk sjóðsins er að veita lán og styrki til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að efla fiskrækt, bæta veiðiaðstöðu, styðja við rannsóknir í ám og vötnum og auka verðmæti veiði úr þeim. Umsóknir um lán og styrki úr Fiskræktarsjóði, sem koma til greiðslu árið 2012, skal senda stjórn sjóðsins fyrir 1. mars 2012.
Umsóknum skal skilað í sex eintökum til sjóðsins.
Þeir sem fengið hafa styrk úr sjóðnum og sækja aftur um, eru beðnir að skila inn framvinduskýrslu með nýrri umsókn.
Umsóknareyðublöð vegna styrkveitinga úr Fiskræktarsjóði má nálgast hér. Þar má einnig nálgast verklagsreglur sjóðsins. Einnig er hægt að hafa samband við Jóhönnu E. Pálmadóttur, Akri, sími 452 4290 eða starfsmann sjóðsins Marínu E. Samúelsdóttur í síma 569 7900 ef viðkomandi hefur ekki aðgang að tölvu. Umsóknum um styrki eða lán úr sjóðnum skal skila til formanns Fiskræktarsjóðs á sérstöku eyðublaði á eftirfarandi heimilisfang:
Fiskræktarsjóður,
Jóhanna E. Pálmadóttir formaður,
Dalshrauni 1b,
220 Hafnarfirði.

























